Illa gekk að rýma Herjólf vegna sjóveiki
Illa gekk að rýma Herjólf, þegar brunaviðvörunarkerfi ferjunnar fór í gang í lok desember. �?etta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa. Reykurinn varð mestur í svokölluðum almenningi sem er salur undir undir bílaþilfari en hann var fullnýttur vegna slæms veðurs, ekki síst vegna sjóveiki hjá farþegum um borð. Í skýrslunni kemur fram að of fáir skipverjar hafi verið til að takast á við þessar aðstæður og að fleiri voru um borð en fyrst var tilkynnt um.
Landhelgisgæslan setti af stað mikinn viðbúnað eftir að brunaboði í Herjólfi fór í gang þann 29. desember. Áhafnir beggja björgunarþyrlanna voru kallaðar út sem og björgunarskipið �?ór og lóðsinn. Ruv.is greinir frá.
Fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndarinnar að brunaviðvörunarkerfið hafi farið í gang um klukkan fjögur en að beiðni um aðstoð hafi verið afturkölluð tæpum hálftíma seinna. �?á hafði komið í ljós að reimar höfðu slitnað í loftræstiblásara fram á skipinu og við það myndast reykur og gúmmílykt.
Í skýrslunni kemur fram að illa hafi gengið að rýma skipið vegna sjóveiki um borð en slæmt veður var á þessum tíma og almenningur, þar sem mestur reykurinn var, því fullnýttur af farþegum. Aðstoða þurfti marga farþega til að komast á mótstað og tók rýming skipsins 10 til 15 mínútur.
Fram kom hjá skipstjóra Herjólfs að of fáir skipverjar hefðu verið um borð til að takast á við þessar aðstæður. �?að hafi því komið sér vel að tveir úr áhöfn Herjólfs, sem voru í fríi, voru meðal farþega. �?eir hafi aðstoðað skipverja við rýmingu. �?á voru fjarskipti milli stjórnpalls og skipverja slæm, sérstaklega frá stjórnpalli niður í almenning þar sem mestur reykurinn var.
�?á segir í skýrslunni að samkvæmt fyrstu upplýsingum frá Herjólfi til Vaktstöðvar siglinga hafi verið tilkynnt að 132 manns væru um borð. Seinna hafi komið í ljós að í áhöfn voru tólf og farþegar 137 eða samtals 149. �??Í ljós kom að engin skráning var á farþegum sem voru með skipinu í þessari ferð.�?? Nefndin leggur því til að fjöldi í áhöfn verði endurskoðaður að teknu tilliti til öryggi skips, áhafnar og farþega.

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.