Inga Sæland sér ljósið í Neistanum í Vestmannaeyjum
Inga: Ég heimsótti Vestmannaeyjar um daginn og fór í skólann og fékk að kynnast starfinu og gleðinni sem þar ríkir, sem er aðdáunarverð.

Inga Sæland, sem tekur við embætti mennta- og barnamálaráðherra í dag sagði á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun að menntakerfið hefði brugðist og vill fara finnsku leiðina og innleiða verkefnið Kveikjum neistann, sem Grunnskólinn í Vestmannaeyjum hefur fylgt með frábærum árangri frá árinu 2022. Mbl.is birti frétt um viðtalið við Ingu.

Sagði Inga að tæplega helmingur drengja útskrifast úr grunnskóla án fullnægjandi lesskilnings. Í því ljósi sé verkefnið Kveikjum neistann mjög áhugavert. Yfir 90 prósent nemenda í Grunnskóla Vestmannaeyja sem hófu nám í fyrsta bekk árið 2022 hafa náð tilskyldum viðmiðum í lesskilningi, óháð kynjum. „Ég vil segja það að ég er hreinlega að rétta fram hendurnar og bjóða sveitarfélögunum okkar og kennarasamfélaginu upp á aðstoð við að breyta kerfi sem hefur brugðist algjörlega. Kerfið hefur líka brugðist kennurunum okkar sem eru að bugast,“ sagði Inga og sagðist aðspurð horfa til Finnlands og Vestmannaeyja. Finnar hafi náð sér á strik eftir hraklega útreið í Pisakönnunum. Staða sem Íslendingar þekkja.

„Þá voru helstu sérfræðingar í menntamálum teknir að borðinu og sagt: við verðum að snúa skipinu við. Þeir koma með þessa svokölluðu finnsku leið sem ég hef verið að kynna mér, þar sem meira er horft á barnið sem einstakling fremur en heild í boxi þar sem allir eiga nánast að vera eins,“ sagði Inga.

Lausnina er að finna í Eyjum

„Þar er lögð sérstök áhersla á gleði og hjálp við barnið strax til að læra að lesa. Lögð er áhersla á að barnið finnist það öruggt í bekknum sínum, það er meiri leikur, útiveru og lestur og ekki verið að bæta á barnið landafræði, sögu og öðrum tungumálum þegar það er ólæst,“ sagði Inga.

Hljómar kunnuglega í eyrum þeirra sem fyglst hafa með Kveikjum neistann í Vestmannaeyjum enda fyrirmyndin sótt til Finnlands en hefur fengið litla athygli hér á landi þrátt fyrir frábæran árangur. „Ég heimsótti Vestmannaeyjar um daginn og fór í skólann og fékk að kynnast starfinu og gleðinni sem þar ríkir, sem er aðdáunarverð,“ sagði Inga.

Inga er ekki fyrsti ráðherra mennta- og barnamála sem fær augastað á Kveikjum neistann en þeim hefur lítið orðið ágengt þrátt fyrir frábæran árangur verkefnisins. Hvað veldur skal ósagt látið en það væri mikið gæfuspor fyrir þjóðina í heild að meira yrði horft til Vestmannaeyja þegar kemur að menntun barna og unglinga. Lausnina er að finna í Eyjum.

 

Einar Gunnarsson og Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjórar Grunnskóla Vestmannaeyja.

Kveikjum neistann virkar

Einar Gunnarsson, skólastjóri Grunnskóla Vestmannaeyja skrifaði pistil um reynslu sína af Kveikjum neistann verkefninu sem birtist á eyjafrettir.is 16. desember sl. Þar segir hann: „Eftir 23 ár í skólastarfi, bæði sem kennari og skólastjórnandi, hef ég séð mörg verkefni koma og fara í íslensku skólakerfi. Kveikjum neistann kom inn í Grunnskóla Vestmannaeyja fyrir fimm árum þegar ég var aðstoðarskólastjóri og get ég fullyrt að það er áhrifaríkasta verkefni sem hefur komið inn á borð mitt á mínum starfsferli.“

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.