Innleiða skjalastefnu hjá Vestmannaeyjabæ

Skjalastjórnun var til umræðu á fundi bæjarráðs í vikunni sem leið. Lögð voru fyrir bæjarráð drög að skjalastefnu Vestmannaeyjabæjar. Skjalastefnan er hluti af átaki um bætta skjalastjórnun hjá Vestmannaeyjabæ og er unnin í samstarfi sviðanna þriggja, skjalastjóra og Héraðsskjalastjóra. Leitað var ráðgjafar frá fyrirtækinu Skipulag og skjöl ehf. um stefnumótun og innleiðingu, en sífellt auknar kröfur eru gerðar um gæði skjalastjórnunar og meðferð mála hjá opinberum aðilum. Stefnt er að rafrænum skilum mála í framhaldinu.

Bæjarráð samþykkir í niðurstöðu sinni drög að skjalastefnu Vestmannaeyjabæjar og felur stjórnsýslu- og fjármálasviði innleiðingu átaks í skjalastjórnun Vestmannaeyjabæjar, m.a. að endurskoða skjalalykil og að fræða forstöðumenn og starfsfólk um meðferð og skjölun mála.

SkjalastefnaVeyjarTillaga2023.pdf

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.