Ísfell býður upp á fjölbreytt úrval af vinnufatnaði
Verslun fyrirtækisins Ísfells í Vestmannaeyjum, sem staðsett er við Kleifarbryggju 4-6, hefur bætt við sig fjölbreyttu úrvali af vinnu- og sjófatnaði til viðbótar við þær vörur sem fyrir voru. Um er að ræða allt frá vinnuhönskum yfir í sjóstakka og sérhæfðan skóbúnað.
�??Hugsunin er fyrst og fremst að bæta fataúrval verslunarinnar til að geta þjónustað fyrirtækin í Vestmannaeyjum betur,�?? segir Björn Kristjánsson, verslunarstjóri Ísfells í samtali við Eyjafréttir. �??Við höfum verið sterkir í öllu tengdu útgerðunum fyrir utan fötin, þannig að við höfum bætt við okkur miklu úrvali af regn- og vinnufatnaði og það er svona aðal áherslan hjá okkur í verslunarrekstrinum núna.�??
Hingað til hefur Ísfell aðallega séð um viðgerðir, viðhald og uppsetningu neta fyrir bæði Ísfélagið og Vinnslustöðina en með þessari viðbót má segja að fyrirtækið sé að færa út kvíarnar. �??Til að byrja með vorum við aðallega með lása, króka og annað slíkt en mjög takmarkað úrval af fatnaði. Með þessari viðbót erum svolítið að víkka út starfsemina og má segja að við séum nú með alla flóruna fyrir útgerð,�?? segir Björn að endingu.

Nýjustu fréttir

Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Arnar Pétursson valdi 18 leikmenn fyrir vináttuleiki gegn Póllandi
Yfirtaka á úrgangsþjónustu kallar á verulega fjárfestingu
VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.