Íslandsmótið í snóker í Eyjum á morgun
Mikil gróska er í snóker í Vestmannaeyjum.

– Byrjar 10.00 og verður spilað í Kiwanis, Oddfellow og Bönkernum

Í fyrsta sinn verður haldið Stigamót Íslandsmótsins í snóker í Vestmannaeyjum.  Mótið hefst klukkan 10.00 á morgun, laugardag og verður keppt á þremur stöðum, Kiwanis, Oddfellow og í Bönkernum, sem er í kjallara Hvítasunnukirkjunnar.  Eyjamönnum er velkomið að kíkja við og fylgjast með nokkrum af bestu snókerspilurum landsins etja kappi.

Nokkrir Eyjamenn taka þátt í mótinu en Íslandsmótið í snóker er þannig að haldin eru 9 stigamót yfir vetrartímann og safna leikmenn stigum á stigalista.  Í lok vetrar fer svo fram úrslitakeppni þar sem stigahæstu leikmenn mætast.  Mótið verður klárað á laugardaginn gera má ráð fyrir að undanúrslit hefjist um fimmleytið og úrslitaleikur um kvöldmatarleytið.  Undanúrslit og úrslit fara fram í Bönkernum í kjallara Hvítasunnukirkjunnar.

Fréttatilkynning.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.