Jafntefli gegn Fram
Arn­ar Pét­urs­son, þjálf­ari karlaliðs ÍBV í hand­knatt­leik, var allt annað en sátt­ur með 26:26 jafn­teflið gegn Fram í 2. um­ferð Olís-deild­ar­inn­ar í kvöld en leikið var í Safa­mýri. Fram jafnaði á síðustu sek­únd­um leiks­ins. Frétt frá mbl.is
�??�?etta var mjög dap­urt, al­veg frá fyrstu mín­útu. Síðari hálfleik­ur­inn var varla betri en sá fyrri, við mætt­um ein­fald­lega ekki til leiks og féll­um á elsta próf­inu í bók­inni, það að leyfa okk­ur að mæta hérna án þess að þurfa að hafa fyr­ir því,�?? sagði Arn­ar við mbl.is. í dag.
Varn­ar­leik­ur Eyja­mann var slapp­ur í dag og þá sá hinn 16 ára gamli Vikt­or Gísli Hall­gríms­son við sókn­ar­leik þeirra með frá­bær­um vörsl­um.
�??�?að var af­skap­lega fátt til staðar í dag. Ef menn mæta ekki klár­ir, sama hvort menn ætla að spila vörn eða sókn, þá lenda þeir á vegg. Við lent­um á vegg í fyrri hálfleik og við sáum það á varn­ar­leik og sókn­ar­leik, líka færa­nýt­ing­una. �?að kem­ur ung­ur strák­ur í markið sem er að verja vel.�??
�??Við náðum okk­ur aldrei úr þessu og urðum yf­ir­spennt­ir. Við feng­um þrjú mörk í for­ystu en Fram­ar­arn­ir mættu okk­ur aft­ur og fóru að snerta okk­ur. Við þold­um það illa í dag, sem sýn­ir svo­lítið hvernig menn voru móti­veraðir í þessu,�?? sagði hann enn­frem­ur.
�??�?etta er eitt­hvað sem við verðum að læra af. Við verðum að vera meðvitaðir um það að við þurf­um að mæta til leiks og þá erum við hel­víti góðir en ef ekki þá verðum við al­veg jafn lé­leg­ir,�?? sagði hann að lok­um.

Nýjustu fréttir

Stórum framkvæmdaráfanga að ljúka hjá Vinnslustöðinni
Gildrur notaðar til fiskmerkinga við Vestmannaeyjar
Treg veiði hjá Eyjaskipunum
Gary Phillips og Parkman Cook til ÍBV
Dæluskipið Sebastiano Caboto komið til Eyja
Fyrsti heimaleikurinn – ÍBV fær Selfoss í heimsókn
Umhverfisviðurkenningar Vestmannaeyjabæjar afhentar
Herrakvöld handknattleiksdeildar á laugardaginn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.