Jólafundur Aglow í kvöld
aglow
Frá jólafundi Aglow. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Jólafundur Aglow verður í kvöld, 4. desember kl.19.30 í safnaðarheimili Landakirkju. Það hefur ríkt eftirvænting fyrir þessum fundi. Við komum saman í fögnuði og hlustum á og finnum fyrir snertingu jólanna. Það verður mikið sungið og er það hátíðlegt að syngja saman jólasöngva. Boðið verður upp á fjölbreytt söngatriði, einsöng, tvísöng og svo syngjum við öll saman, segir í tilkynningu frá stjórn Aglow.

Vera Björk Einarsdóttir les jólasögu. Í lok fundar mun kirkjukór Landakirkju undir stjórn Kittýar syngja fyrir  okkur og svo endum við saman á að syngja Heims um ból.

Ræðumaður kvölsins verður sr. Sunna Dóra Möller og er það okkur mikill heiður að fá hana til okkar, en hún starfar núna sem afleysingarprestur í Landakirkju. Sr. Sunna Dóra er fædd 1975 og upp­al­in í Árbæj­ar­hverf­inu í Reykja­vík. Hún lauk embætt­is­prófi frá guðfræðideild Há­skóla Íslands í fe­brú­ar 2011 og hef­ur starfað sem prest­ur frá ár­inu 2012, fyrst sem æsku­lýðsprest­ur við Ak­ur­eyr­ar­kirkju, eft­ir að hafa verið æsku­lýðsfull­trúi þar í tvö ár á und­an, og svo við Hjalla­kirkju í Kópa­vogi, sem sam­einaðist síðar Digra­nes­kirkju.

Hvernig hugleiðum við boðskap jólanna um Jesú sem fæddist í þennan heim fyrir margt löngu. Hann óx og dafnaði, dó á krossi og reis upp frá dauðum. Við getum átt samfélag við hann í dag og hann býður okkur til sín.  Hugsum um og hugleiðum orðin í Jóhannesarguðspjalli 1.9;           Hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann, kom nú í heiminn.

Fundurinn byrjar klukkan 19.30 með veitingum og fundurinn byrjar kl. 20.00. Á  jólafundinn eru allir velkomnir, konur og karlar. Fyrsti fundurinn á nýju ári verður miðvikudaginn 8. janúar.

Gleðileg jól og megi innihald jólanna verða raunverulegt í lífi okkar allra.

 

Stjórn Aglow í Vestmannaeyjum

Nýjustu fréttir

Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.