Jólasveinaklúbbur fyrir flotta krakka
Bókasafn Vestmannaeyja stendur fyrir jólasveinaklúbbi frá 16.nóv til 21. des til að hvetja börn til lesturs. Bókasafnið vill leggja sitt af mörkum í �?jóðarátaki til læsis og þetta er einn liður í því.
Allir krakkar upp í 5. bekk geta tekið þátt. Ef teknar eru 5 jólabækur, þær lesnar og þeim skilað fyrir 21. des komast krakkarnir í Jólasveinaklúbbinn. Athugið að mömmur og pabbar, afar og ömmur, systkini, frænkur og frændur mega lesa jólasögurnar fyrir þau sem ekki eru farin að lesa sjálf.
�?ann 21. des kl. 13-14 verður síðan haldin uppskeruhátíð í Einarsstofu. �?á fá allir sem taka þátt skírteini þess efnis að hafa komist í klúbbinn með sínu eigin jólasveinanafni! �?ar verður sannkölluð jólastemning, lesin verður jólasaga, sungin verða jólalög og kannski kemur jólasveinn í heimsókn!
Njótum aðventunnar og lesum jólasögur!

Nýjustu fréttir

Safnahelgin formlega sett – myndir
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.