Svarið ehf sem vinnur að koma upp Laufey þjónustumiðstöð á Bakka hefur fengið öflugan liðsauka: Jón Karl Ólafsson fyrrv. forstjóri Icelandair, framkvæmdastjóri Isavia, Flugleiða og formaður Samtaka ferðaþjónustunnar í 6 ár. Jón Karl hefur yfir 30 ára reynslu af ferðaþjónustu á Íslandi og er að öðrum ólöstuðum vafalítið með mestu reynslu og þekkingu á greininni sem stjórnandi hér á landi. Hann mun gegna stöðu stjórnarformanns Svarsins og er væntanlegur til Vestmannaeyja á næstu dögum til viðræðna við hagsmunaaðila.

Jón Karl:
„Ég er himinlifandi að koma að þessu verkefni sem nýr stjórnarformaður. Þetta er myndarlegasta og jafnframt eitt þarfasta verkefni sem ég hef séð lengi, sérstaklega fyrir Vestmannaeyjar. Fyrir liggur mikil vinna og undirbúningur á þriðja ár og ég geng til liðs við þá félaga vegna þess að ég trúi heilshugar á verkefnið og til að koma þessu af stað í framkvæmd, nú þegar öll tilskilin leyfi eru klár. Núna eru fleiri bæjarfélög búinn að lýsa áhuga en það er Sveini Waage og félögum mikið í mun að byrja í Vestmannaeyjum og ég trúi ekki öðru en það gangi eftir“

Sveinn Waage:
„Þetta eru frábær tíðindi, sannkallaður hvalreki, fyrir okkur. Ef við fengjum að velja eina manneskju á landinu til liðs við okkur í þessu verkefni væri Jón Karl líklega efstur á lista. Það skemmir ekki að hann er ekki bara eldklár og öflugur heldur skemmtilegur líka, en ekki segja honum það samt J Eins og allt gott fólk hefur hann tengingu við Eyjar og deilir sannfæringu minni að Eyjarnar eigi mikið inni þegar kemur að ferðamennsku. Það verður frábært að taka þetta verkefni áfram með honum.“
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.