„Okkur voru að berast fréttir sem komu heldur betur á óvart en ÍBV íþróttafélag hefur ákveðið að rifta samningnum hans Glenn,“ segir Þórhildur Ólafsdóttir í langri færslu á FB-síðu sinni í dag. Jonathan Glenn þjálfaði ÍBV í Bestu deildinni í sumar og skilaði þeim í sjötta sæti sem verður að teljast viðunandi árangur.
Upplifum okkur svikin
Þórhildi, leikmanni ÍBV og eiginkonu Jonathans er greinilega brugðið. „Glenn hefur ávallt haft hag klúbbsins í forgangi og passað sig að halda góðri orðræðu á lofti þegar kemur að félaginu. Hinsvegar þá upplifum við okkur svikin og get ég ekki staðið hjá og horft uppá hann vera beittan ranglæti sem þessu.
Glenn er einhver sem hefur unnið hörðum höndum og lagt allt sitt í að bæta félagið okkar bæði sem leikmaður og þjálfari. Síðasta haust var hann ráðinn þjálfari liðsins. Erfitt hafði verið fyrir knattspyrnuráð að finna einhvern í stöðuna en hann var klárlega síðasti kostur knattspyrnuráðs þar sem enginn virtist vilja taka við kvennaliðinu,“ segir Þórhildur m.a. í langri og ítarlegri færslu á FB-síðu sinni.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst