Kæra vegna ólöglegrar dreifingar á nektarmyndum
Í vikunni barst lögreglunni í Vestmanneyjum kæra vegna ólöglegrar dreifingar á nektarmyndum. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu sem kynferðisbrot og fjársvik.
Af þessu tilefni vill lögreglan í Vestmannaeyjum benda á að netglæpir færast í aukana alls staðar í heiminum og samkvæmt sérfræðingum hjá Europol þá mun slíkum glæpum fjölga mikið á næstu árum. Almenningur þarf að vera á varðbergi gagnvart ýmis konar netglæpum en mikið af skipulagðri glæpastarfsemi fer fram með þessum hætti. Algengt er að reynt sé að svíkja fé út úr fólki með blekkingum og allskyns hótunum. Komist óprúttnir aðilar til dæmis yfir nektarmyndir af fólki er algengt að þær séu notaðar í þeim tilgangi að svíkja út úr því fé eða neyða fólk til ýmissa athafna. Tæknin er komin til að vera en mikilvægt er að fólk kunni að umgangast hana. �?á er lykilatriði að allir geri sér grein fyrir, ungir sem aldnir, að dreifing á myndum sem sýna fólk á kynferðislegan eða klámfenginn hátt er brot á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga og liggur fangelsisrefsing við slíkum brotum. �?eir sem verða fyrir slíkum brotum er bent á að tilkynna slíkt tafarlaust til lögreglu.

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.