Kári Kristján er eins og Herjólfur
Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður og fyrrum markvörður ÍBV, skrifar skemmtilegan pistil á heimasíðu sína Gustavsson.is. Eins og svo mörg íslensk handboltalið, hitar íslenska landsliðið upp í fótbolta fyrir æfingar. Björgvin Páll fer í pistli sínum yfir gæði leikmanna og líkir þeim í flestum tilvikum við knattspyrnumenn, þó ekki alla. Um Eyjamanninn Kára Kristján Kristjánsson skrifar Björgvin Páll:
Misjafnasti leikmaður heims. Allt eða ekkert gæji og mjög erfitt að lesa hvernig dagurinn verður hjá honum. Fann engan fótboltamann sem hægt er að líkja við hann þannig að við segjum bara að hann sé eins og Herjólfur… Erfitt að treysta á hann…
Um sjálfan skrifar Björgvin Páll:
Hef litla yfirsýn, á það til að halda boltanum of lengi og stundum í vandræðum með að losa mig við boltann. Berst samt vel og reyni að bæta upp skort á hæfileikum með því að hlaupa og berjast. Hendi hiklaust á mig Hemma Hreiðars stimpli.
Og um Eyjaþjálfarana tvo skrifar Björgvin Páll þetta:
Gunnar Magnússon : Hann hefur spilað í kringum 10 leiki á ferlinum og hefur átt á þessum tíma eina heppnaða sendingu en sú sending var reyndar í anda David Beckham, en þar skrúfaði hann boltann úr mikill fjarlægð fyrir markið sem skilaði glæsilegu marki og lifir hann enn þann dag í dag á þessari mögnuðu sendingu. Verðum að henda Beckham stimplinum á hann enda ekki ólíkir á velli.
Erlingur Richardsson : Jamie Carragher.

Nýjustu fréttir

Mikilvægasta skipið
Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág
Ábending frá Herjólfi
Appelsínugular viðvaranir gefnar út
Brýn þörf á úrbótum í Landeyjahöfn – tillögur væntanlegar í vor
Díana Dögg og Andrea deildarmeistarar í Þýskalandi
Gleði og góð mæting á páskaeggjaleitinni – myndir
Viðvörun fyrir allt landið á annan í páskum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.