Karlalið ÍBV sigurvegari á Ragnarsmótinu á Selfossi
Mynd/ÍBV handbolti

Karlalið ÍBV í handbolta stóð uppi sem sigurvegari á Ragnarsmótinu á Selfossi. Eyjamenn unnu tvo af þremur leikjum sínum og tryggðu sér þar með sigur á mótinu. Mótið er liður í undirbúningi liðsins fyrir Olís deildina sem hefst í byrjun september.

ÍBV hóf mótið á leik gegn Víkingi Reykjavík. Þar mátti liðið sætta sig við 27–30 tap.

Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 10, Daníel Þór Ingason 3, Haukur Leó Magnússon 3, Kristófer Ísak Bárðarson 2, Andri Magnússon 2, Sigtryggur Daði Rúnarsson 2, Sveinn José Rivera 2, Atli Steinn Arnarsson 1 og Einar Bent Bjarnason 1.

Í öðrum leik sínum mætti ÍBV heimamönnum í Selfossi og þar höfðu Eyjamenn betur, 22–31.

Mörk ÍBV: Einar Bent Bjarnason 8, Daníel Þór Ingason 6, Kristófer Ísak Bárðarson 3, Anton Frans Sigurðsson 3, Atli Steinn Arnarsson 3, Sigtryggur Daði Rúnarsson 3, Haukur Leó Magnússon 2, Jason Stefánsson 2 og Sveinn José Rivera 1.

ÍBV lauk síðan mótinu með stórsigri gegn ÍR, 45–25. 

Mörk ÍBV: Jason Stefánsson 7, Kristófer Ísak Bárðarson 7, Einar Bent Bjarnason 6, Daníel Þór Ingason 5, Dagur Arnarsson 4, Sveinn José Rivera 4, Andri Magnússon 3, Atli Steinn Arnarsson 3, Haukur Leó Magnússon 3, Sigtryggur Daði Rúnarsson 2 og Benóný Þór Benónýsson 1.

 

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.