Kostnaður við hönnun á nýjum Herjólfi, sem siglir milli lands og Eyja, var orðinn rúmar 147 milljónir króna í september síðastliðinn.
�?etta kemur fram í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins.
Í svarinu kemur fram að kostnaður við ráðgjöf og sérfræðiaðstoð vegna hönnunar hafi numið 136,8 milljónir króna, og kostnaður vegna vatnslíkanprófana erlendis numið 139.200 evrum og var greitt fyrir þá vinnu um 21,5 milljónir króna.
Í svari við fyrirspurn Ásmundar um hver sé viðbótarkostnaður vegna lengingar ferjunnar um 4,2 metra og tankprófana á stærri ferju segir að mat ráðgjafa Vegagerðarinnar sé að hann sé óverulegur – innan við tvö til fjögur prósent – þar sem fyrst og fremst sé um aukið stálmagn að ræða. Tilboð norska fyrirtækisins Polarkonsult í viðbótartankprófanir nemi 64.900 evrum, eða um 9,4 milljónir króna.
Ásmundur spurði jafnframt hversu hár hönnunarkostnaður nýrrar ferju hafi upphaflega verið áætlaður.
�??Algengt er að smíði og hönnun sé boðin út saman. Miðað er við að hönnunarkostnaður ferju af þessari stærðargráðu geti numið allt að 15% af heildarkostnaði. Ákveðið var að skipta verkefninu upp og bjóða út fyrsta hluta hönnunar sérstaklega. Áætlaður hönnunarkostnaður var 800.000 evrur (um 116 millj. kr.), þar af voru áætlaðar 300.000 evrur (44 millj. kr.) í prófanir og hermanir. Undanskilið í hönnunarkostnaði var eftirlit með hönnun, ráðgjöf við vinnuhóp, þátttaka í hermun, frekari prófanir o.fl.,�?? segir í svari innanríkisráðherra.