KR-ingar hafa áhuga á að fá Guðjón Orra Sigurjónsson markvörð ÍBV í sínar raðir samkvæmt heimildum 
Fótbolta.net.  Guðjón Orri lýsti því yfir á dögunum að hann vildi yfirgefa herbúðir ÍBV eftir að Abel Dhaira landsliðsmarkvörður �?ganda samdi við félagið.  Guðjón Orri hefur æft af og til með KR-ingum í vetur en hann er í skóla á höfuðborgarsvæðinu.  
Samkvæmt heimildum 
Fótbolta.net hafa Íslandsmeistararnir áhuga á að fá Guðjón Orra en markmannsmálin í Vesturbæ hafa verið í óvissu að undanförnu.
 
Hannes �?ór Halldórsson er farinn til Sandnes Ulf og möguleiki er á að Rúnar Alex Rúnarsson fari einnig út í atvinnumennsku.  KR-ingar hafa átt í viðræðum við Stefán Loga Magnússon sem er líklega á heimleið frá Noregi og þá hefur félagið einnig áhuga á að krækja í hinn 21 árs gamla Guðjón Orra.