Krafa vegna samráðsins tæplega 29 milljónir króna

�?að sé sá afsláttur sem reikna má með að Vestmannaeyjabær hefði fengið af keyptu eldsneyti frá maí 1997 til loka árs 2001 ef ekki hefði verið um samráð að ræða.

Elliði segir að Varakrafa byggi á því að samkvæmt hinu ólögmæta samráði greiddi Olíufélagið hf. hlutdeild í framlegð sinni til Skeljungs og Olís og sama gerði Skeljungur vegna viðskipta sinna við Vestmannaeyjabæ. Gögn sem lögð hafa verið fram sýni að í gildi var samkomulag sem gerir ráð fyrir því að olíufélögin gerðu með sér samkomulag um að greiða skyldi 2,01 krónu á líter vegna viðskipta við Vestmannaeyjabæ.
�?�?etta samkomulag er algerlega sambærilegt við það sem í gildi var hvað Reykjavíkurborg varðar nema að brotið gagnvart okkur er grófara þar sem upphæðin er hærri því greiðslan milli olíufélagana vegna Reykjavíkurborgar var 1.91 króna,�? sagði Elliði.
Hann sagðist ekki fá betur séð en að dómur Héraðsdóms í gær sé algerlega fordæmisgefandi hvað Vestmannaeyjabæ varðar þó ef til vill gildi ekki hið sama um aðra. �?Olíufélögin hafa mótmælt okkar kröfum, rétt eins og þeir gerðu hvað Reykjavíkurborg varðar. Við höfum þingfest stefnuna og bíðum því eftir annað hvort sáttaumleitunum olíufélagana eða fyrirtöku í héraðsdómi. Vestmannaeyjabæ ber alger skyld til að leita réttar síns í þessu máli og það verður gert,�? sagði Elliði.

Nýjustu fréttir

Landa fyrir austan
Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.