Landað annan hvern dag
20240305_bergur_bryggja
Landað úr Berg VE í síðustu viku. Eyjar.net/TMS

Það hefur gengið vel hjá ísfisktogurunum Bergi VE og Vestmannaey VE að undanförnu. Þeir hafa staldrað stutt við á miðunum og komið að landi með fullfermi.

Rætt er við Arnar Richardsson, rekstrarstjóra útgerðanna á vefsíðu Síldarvinnslunnar.

“Segja má að þetta hafi gengið eins og í sögu og það er gjarnan landað fullfermi annan hvern dag. Skipin fóru til dæmis út eftir löndun sl. fimmtudag og þau komu til löndunar á laugardagsmorgun. Farið var út eftir löndunina þá og komið á ný til löndunar í morgun. Síðan er stefnt að löndun á ný á miðvikudag. Þetta gengur svona fyrir sig og það eru allir glaðir. Veitt hefur verið í nágrenni Eyjanna, mest í Háfadýpi og á Pétursey. Aflinn á laugardag var mest ýsa og þorskur en í dag eru skipin með ýsu, þorsk og ufsa. Við reynum að keyra á ýsu og ufsa eins og við getum en þorskurinn kemur alltaf með. Þetta er vertíðartími og þrusugangur í þessu,” segir Arnar.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.