Landsbankinn áfrýjar ekki í sparisjóðsmálinu í Eyjum
�??Landsbankinn mun ekki áfrýja niðurstöðu héraðsdóms um að dómkveðja skuli matsmenn í samræmi við kröfu Vestmannaeyjabæjar fyrir hönd stofnjáreigenda í Sparsjóði Vestmannaeyja þar sem Vestmannaeyjabær og Vinnslustöðin eiga stærstan hlut. �?á stóð hópur einstaklinga eftir með skarðan hlut eftir að Sparisjóðurinn féll.
�??�?annig er ljóst að dómkvaddir verða matsmenn til að meta virði stofnfjár í Sparisjóðnum þegar hann var á þvingaðan máta sameinaður við Landsbankann. �?á hefur embætti umboðsmanns í kjölfar frétta um matsmálið beðið um gögn málsins og hefur lögmaður okkar þegar sent þau,�?? segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri um stöðu málsins.
�??�?að gleður mig að barátta okkar skuli hafa skilað því að kominn er sáttatónn í Landsbankann hvað þessi mál varðar. Hér í Eyjum eru fjölmörg heimili sem fóru illa út úr falli Sparisjóðsins og það skiptir miklu fyrir stofnfjáreigendur að fá hlutlausar upplýsingar um það hvers virði eignarhlutir þeirra voru þegar verðmætin voru gerð upptæk.
Að mínu mati var illa staðið að sameiningu Sparisjóðs Vestmannaeyja og Landsbankans. Stofnfjáreigendur höfðu þar nánast enga aðkomu og hafa frá upphafi talið að óvissa sé um hvort verðmæti stofnfjár hafi verið rétt metið. Jafnvel var svo langt gengið að �??kaupandi�?? þessara eigna (Landsbankinn) reyndist hafa upplýsingar um verðmæti eignarinnar langt umfram það sem �??seljandinn�?? (stofnfjáreigendur) hafði. Nú verður sem sagt farið í að finna út verðmætið með hlutlausu verðmætamat á eignarhlutanum,�?? sagði Elliði.

Nýjustu fréttir

Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum um heimgreiðslur
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins verður 13. mars
Alexandra Ósk framlengir við ÍBV
Bifreið hafnaði á járngirðingu við Kirkjuveg
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug
Gugusar fimmti tónlistamaðurinn á Hljómey
Tónlistarsköpun fyrir ungmenni í Féló
Dramatískur sigur ÍBV á Haukum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.