Landsbankinn vinnur að samruna bankans og Sparisjóðs Norðurlands
Landsbankinn hf. hefur þann, 19. júní 2015, skrifað undir samkomulag við Sparisjóð Norðurlands ses. um að hafinn verði undirbúningur að samruna félaganna. Stjórn sparisjóðsins leitaði til Landsbankans þann 9. júní 2015, til að kanna áhuga á samruna, vegna óvissu um framtíð sjóðsins og hafa viðræður staðið frá þeim tíma.
Samruni lýtur lögbundnu ferli sem tekur að lágmarki fjórar vikur, frá því hann er fyrst auglýstur með formlegum hætti og er háð aðkomu bæði Fjármálaeftirlits og Samkeppniseftirlits.
Sameinað fyrirtæki yrði rekið undir nafni Landsbankans og við hann rynnu allar eignir og skuldbindingar sparisjóðsins inn í Landsbankann og hann tæki við rekstri allra útibúa sjóðsins.
Samkvæmt því samkomulagi sem fyrir liggur munu stofnfjáreigendur í sparisjóðnum fá greitt með hlutabréfum í Landsbankanum. Heildarendurgjald til þeirra yrði 594 milljónir króna með fyrirvara um áreiðanleikakönnun.
Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans segir: �??Stjórn Sparisjóðs Norðurlands ses. óskaði eftir afstöðu Landsbankans til samruna félaganna í ljósi þess að sjóðurinn hefur ekki uppfyllt kröfur eftirlitsaðila um eiginfjárhlutfall. Að fengu samþykki eftirlitsaðila teljum við að samruni fyrirtækjanna geti gengið greiðlega fyrir sig og að Landsbankinn geti haldið úti öflugri þjónustu á svæði Sparisjóðs Norðurlands.�??

Nýjustu fréttir

Valur vann ÍBV í fyrsta leik í úrslitaeinvíginu
The Puffin Run fór fram í dag í blíðskaparveðri
Ástríðan fyrir trérennslu kviknaði í faraldrinum
Dýpkun gekk vel í morgun
Sjálfstæðisflokkur stærstur í Suðurkjördæmi
Góð stemning á fjölskyldudegi á Stakkagerðistúni
ÍBV mætir Val í fyrsta leik úrslita
The Puffin Run hlaupið í níunda sinn á morgun
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.