Liðsmenn ÍBV lentu í árekstri
ibv_ruta_24
ÍBV rútan lenti í árekstri í dag. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Meistaraflokkar kvenna í handbolta og fótbolta frá ÍBV voru að ferðast saman í rútu í dag þar sem bæði lið áttu útileiki. Fram kemur í tilkynningu á facebook-síðu ÍBV að þær hafi lent í árekstri á leiðinni heim. Enn fremur segir að sem betur fer sluppu allar vel, einhverjar aumar en annars allar óslasaðar.

Haft er eftir Guðjóni Ingvars­syni, vakt­stjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborg­ar­svæðinu, á fréttavefnum mbl.is að árekst­ur hafi orðið á milli fólk­bif­reiðar og rútu við af­leggj­ar­ann við Heiðmörk fyr­ir skömmu. Guðjón seg­ir að ekki hafi verið al­var­leg meiðsl á fólki, en að verið sé að skoða hvort að flytja þurfi tvo til þrjá á sjúkra­hús. „Þetta slapp þokka­lega,“ er haft eftir honum.

Þá segir á vef Vegagerðarinnnar að búið sé að loka Suður­lands­vegi við Heiðmerk­ur­veg/​Rauðhóla vegna um­ferðarslyss­ins. Þar seg­ir að hjá­leiðir séu um Nesja­valla­veg á leið til Reykja­vík­ur og um hliðar­veg til aust­urs.

Nýjustu fréttir

Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja
Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.