Lítil loðnuvertíð undirbúin
20250221 095201
Myndin er tekin á bryggjunni í dag. Í bakgrunn má sjá glitta í Sigurð VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Strax í gær byrjuðu þær útgerðir sem eiga loðnukvóta að undirbúa skip til brottfarar á loðnumiðin. Hafrannsóknastofnun ráðlagði veiðar á 8589 tonnum, en af þeim tonnum verður 4.683 tonn til skiptana til ís­lenskra skipa. Útgerðirnar í Eyjum eru í óðaönn að undirbúa veiðarnar.

Í færslu á facebook-síðu Ísfélagsins í dag segir að  eðlilega hafi kurrað í uppsjávarsviði félagsins við fréttirnar. „Áætlað er að Ísfélagið fái um 1.000 tonn af úthlutuðum kvóta. Heimaey og Sigurður eru að gera klárt til veiða, loðnunæturnar á leið um borð og áætluð brottför til loðnuveiða er í fyrramálið. Áætlað er að frysta hrygnuna fyrir Japansmarkað og hænginn fyrir markað í Austur-Evrópu.” segir í færslunni.

Stefnir í spennandi helgi​!

Á vef Vinnslustöðvarinnar er haft eftir Sindra Viðarssyni, sviðsstjóra uppsjávarsviðs að verið sé að græja Gullberg VE til veiða og ​leggja þeir líklega í hann í nótt​ eða í fyrramálið​.

​,,Við fengum fréttir af loðnu í upphafi vikunnar utan við Þorlákshöfn, það er spurning hvað sú loðna er komin langt vestur eftir. Einnig er spurning um hvernig ástandið er á henni þ.e.a.s. hrognafylling, hrognaþroski, hrygnuhlutfall og fleira.​ Síðan vitum við af loðnu norður af Horni sem Árni Friðriksson mældi í síðustu viku, spurning hvernig ástandið er á henni.​” segir Sindri og bætir við að við ​séum komin ansi seint inn í vertíðina upp á að heilfrysta loðnu​. ​,,Þannig að við höfum ekki marga daga í viðbót allavega hvað varðar loðnuna sem er við Reykjanesið.​ Þetta ​stefnir í spennandi helgi​,” segir Sindri. Hér má sjá alla umfjöllun VSV.

Nýjustu fréttir

Stefnir í spennandi prófkjör hjá Sjálfstæðismönnum
Vonir vakna hjá TV á Íslandsmóti skákfélaga
Ekkert siglt í dag
Þóra Guðný og Svenni um bygginarframkvæmdina  
Gular viðvaranir víðast hvar
Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.