Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!
lotto

Stórvinningshöfum í Lottóappinu fjölgar enn. Sá nýjasti bættist í hópinn á þriðjudagskvöldið þegar 2. vinningur í EuroJackpot, að upphæð 45,4 milljónir króna, gekk út til spilara á höfuðborgarsvæðinu, að því er segir í tilkynningu frá Íslenskri Getspá. Þar segir jafnframt að vinningsmiðann hafi hann keypt í appinu.

Vinningshafinn, sem er á fertugsaldri, opnaði appið stuttu eftir útdrátt og sá að hann hafði hlotið vinninginn. Þrátt fyrir það átti hann erfitt með að trúa eigin augum og beið eftir staðfestingarsímtalinu áður en hann leyfði sér að fagna.

Spilarinn heppni sagðist alltaf velja tölurnar sínar sjálfur og útskýrði að tölurnar, sem færðu honum stóra vinninginn, hefðu verið vandlega úthugsaðar. Spurður út í hvað taki nú við, viðurkenndi hann að hann hefði ekki fyllilega áttað sig á stöðunni ennþá.

„Ég er hreinlega ekki kominn svo langt að ákveða það,“ svaraði vinningshafinn, ynntur eftir því hvað yrði það fyrsta sem hann vildi nota stóra vinninginn í. Hann var þó viss um eitt: „Pottþétt eitthvað skemmtilegt!“

Í tilkynningu Getspár er vinningshafanum óskað innilega til hamingju og um leið þakkað fyrir veittan stuðning – sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu, þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.