Marhólmar fagna tíu ára afmæli
Halldór og Hilmar, tvíburasálirnar í Marhólmum,

„Við Hilmar stofnuðum Marhólma 9. febrúar 2012, skipulögðum starfsemina næstu mánuði, framleiddum masago úr gæðahrognum frá Vinnslustöðinni í fyrsta gáminn í humarsal VSV í desember 2012 og hófum starfsemi í eigin verksmiðju í mars 2013.

Þetta byrjaði með fullvinnslu loðnuhrogna og síðar komu síld og þorskhrogn til sögunnar. Fullvinnsla síldar heyrir sögunni til í bili en við einbeitum okkur að hrognum og seljum á markaði í Bandaríkjunum og Evrópu.“

Frumkvöðlarnir í Marhólmum, Halldór Þórarinsson matvælaverkfræðingur og Hilmar Ásgeirsson iðntæknifræðingur á matvælasviði, gáfu sér tíma til að fagna tíu ára afmæli fyrirtækisins með starfsfólki sínu og þakka því í leiðinni ómetanlegan þátt í starfseminni. Þeir áttu félagið einir framan af en ráða nú samanlagt 25% á móti 75% eignarhlut Vinnslustöðvarinnar.

„Við njótum þess að hafa mjög gott starfsfólk, margir í þeim hópi hafa starfað lengi í fyrirtækinu. Og við vorum heldur betur heppnir með að ráða á sínum tíma Ragnhildi Svansdóttur sem framleiðslustjóra. Hún var þá óreynd á þessu sviði en hefur vaxið í starfi og skilar sínu gríðarlega vel.“

– Hvernig skiptið þið Hilmar með ykkur verkum í forystuteyminu?

„Mér vefst eiginlega tunga um tönn þegar ég svara því. Við erum tvíburasálir og framleiðslutúttur sem göngum hvor í verk hins eftir hendinni. Ég var meira í þróunarmálum áður fyrr en hann í framleiðslunni. Í grófum dráttum má segja að hann sinni framleiðslu fyrst og fremst en ég er aðallega í sölu- og gæðamálum. Svo er ég gjaldkeri líka!

Við höfum marga hatta til skiptanna. Starfsmennirnir eru hátt í 20 talsins og yfirbyggingin smá í sniðum. Þannig viljum við líka hafa það.“

– Hvað sáuð þið fyrir ykkur í upphafi að Marhólmar yrðu þegar þeir myndi dafna og þroskast?

„Markmiðið var að framleiða þúsund tonn af masago á ári og því höfum við náð.

Starfsemin var stofnuð og skipulögð sem vinnsla hráefnis sem til félli í Vinnslustöðinni, með öðrum orðum fullvinnsla sjávarfangs og aukin verðmætasköpun í sjávarútvegi.

Samstarfið við Vinnslustöðina er náið og árangursríkt. Marhólmar lifa nú á masago og þorskhrognum. Við framleiðum góða vöru og aukum stórlega verðmæti sjávarafurðanna. Marhólmar dafna vel á afmælinu.“

Nýjustu fréttir

ÍBV náði í stig á útivelli gegn toppliði Víkings R.
Tæknilegir örðugleikar tefja lagningu NSL-4
Einn besti dagur sumarsins í Eyjum
„Það sló þögn á allt umhverfið“
Ráðherra heimsótt öll lögregluembætti
Orkumótið mikið ævintýri fyrir indversku strákana
Eyjamenn sækja toppliðið heim
Hlý orð Sigurjóns glöddu Sigurgeir, hans gamla kennara
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.