Menning

Suðurkjördæmi er svo sannarlega hérað landbúnaðar, sjávarútvegs, ferðaþjónustu og svo fjölmargra frumgreina okkar góða samfélags. Við eigum gróðursælt undirlendi, ótrúlega náttúrufegurð, gott aðgengi að fiskimiðum sem og útflutningshöfnum og millilandaflugvelli. Fleira má til nefna svo sem aðgangur að orku, vinnuafli og hreinu vatni. Engum dylst miklivægi þessara hluta er kemur að byggðamálum.
Það er þó annað sem fólk nefnir almennt ekki í umræðum um landsbyggðarmál, en það er hlutur menningar. Vel má vera að aðgengi að menningu spili ekki stóra rullu þegar fólk velur sér bústetu, en ef sá hluti samfélagsins er ekki í lagi, þá er hætt við að allir þeir hlutir sem upp voru taldir í upphafi þessarar greinar, dugi skammt til að veita þá lífsfyllingu sem hver maður þarf.
Menning er talin ein af frumþörfum mannsins og er sett til jafns við þörfina að seðja hungur, þreytu og að eðla sig. Sumir hagfræðingar ganga svo langt að setja menningu í efsta sæti þeirra atriða sem skora mest þegar meta skal lífsskilyrði í samfélögum. Atvinna, samgöngur, fæðuöryggi og fleira kemur á eftir.
Suðurkjördæmi er blessunarlega einnig ríkt af menningu og gefur öðrum landshlutum ekkert eftir hvað það varðar. Tónlistarlíf og aðar listir skipa stóran sess, safnastarfsemi er með mesta móti, fjölbreyttar bæjarhátíðir blómstra og veitingastaði má víða finna sem mælast á mælistiku alheimsins og skora þar hátt. Þátttaka almennings í menningu er almennt góð, fjöldi kóra og annarra tónlistarhópa er starfræktur, leikfélög og ýmsir hópar í fjölbreyttum listgreinum. Þannig gefst íbúum bæði tækifæri að njóta menningar og að vera þátttakaendur.
Það er mikilvægt fyrir ráðamenn þjóðar að átta sig á gildi menningar í samfélögum. Sé þáttur menningar ekki tekinn inn í myndina þegar rædd eru landsbyggðarmál, er víst að myndin verður skökk. Huga verður vel að því að búa menningarstarfsemi góðan jarðveg, þar sem almenningur getur stundað og notið lista og menningar. Án slíkrar hugsunar er allt tal um landsbyggðarmál á veikum grunni byggt.
Ríki og sveitarfélög hafa komið myndarlega að þessum málum, með ýmsu móti, svo sem í gegn um menningarhluta uppbyggingarsjóða landshlutanna og með fjárveitingum í menningarhús. Slík aðkoma opinberra aðila er nauðsynleg fyrir framgang menningar og í raun til fyrirmyndar hvernig fjármagni er deilt á svæðunum sjálfum en ekki miðlægt frá höfuðborginni.
Ég kem m.a. úr menningargeiranum og hef djúpan skilning á mikilvægi menningar fyrir samfélög. Ég tel að menningarstarf sé grunnforsenda samfélaga og að skapa þurfi jarðveg til að hún nái að blómstra. Þannig getum við nýtt okkur alla þá aðra kosti sem kjördæmið hefur upp á að bjóða.

Jarl Sigurgeirsson frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Nýjustu fréttir

ÍBV sækir KA heim í dag
Eyjamenn í eldlínunni
Konudagurinn er í dag
Jafnt hjá ÍBV og Fram í Lengjubikar kvenna
Tómas Bent og félagar í Hearts aftur á sigurbraut
ÍBV vann Suðurlandsslaginn
Öflug barátta og samstaða skipar öndvegi í framtíð Eyjanna
Engin börn í vistun utan Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.