Mínútuspursmál hjá Sveini í �?tsvarinu
Eins og áður hefur komið fram, tapaði lið Vestmannaeyja í �?tsvari með dramatískum hætti á laugardagskvöld. �?au Ágúst �?rn Gíslason, Jórunn Einarsdóttir og Sveinn Waage gátu tryggt sér sigurinn með lokaspurningunni, sem var úr sögu HC Andersen, Eldfærin. �?remenningarnir gátu ekki svarað og Grindavík tryggði sér eins stigs sigur með því að giska á svarið í fimmtán stiga spurningunni. Til að gera söguna enn skemmtilegri, segir Sveinn frá því á facebook síðu sinni að fimm tímum fyrir útsendingu þáttarins, hafi hann keypt DVD disk handa dóttur sinni með sögunni af Eldfærunum.
�??5 tímum áður en �?tsvar fór í loftið kom ég við í búð og keypti DVD handa dóttur minni. Myndin heitir ELDF�?RIN m. Góa og �?resti. Viktoría mín vildi horfa strax með pabba sínum.. en eftir c.a. 6-7 mín fannst henni þetta fullrólegt og Sveppi var settur í staðinn. Á 12.mínútu á disknum kemur svarið við 5.stiga spurningunni hans Stefáns,�?? skrifar Sveinn á facebook síðu sína. Tap Vestmannaeyja má því rekja til þess að þolinmæðu litlu dömunnar þraut, aðeins nokkrum mínútum áður en svarið við spurningunni mikilvægu kom fram. Svo er líka hugsanlegt að Sveinn hefði dottað yfir myndinni með dóttur sinni. �?að gerist stundum hjá pöbbum.

Nýjustu fréttir

Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.