Móttaka flóttafólks
yfir_bæ_opf_g
Vestmannaeyjabær. Eyjar.net/Óskar Pétur Friðriksson

Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs kynnti fyrir fjölskyldu- og tómstundaráði Vestmannaeyja drög að nýjum þjónustusamningi milli félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og Vestmannaeyjabæjar um samræmda móttöku flóttafólks. Um er að ræða samning frá 1. janúar 2024 til 31. desember 2024.

Ákvæði er samningnum að ef ríkið uppfyllir ekki fyrir 30. júní 2024 ákvæði um að koma á fót starfshópi með það að markmiði að endurskoða samninginn og koma með tillögu að nýjum samningi til framtíðar, fellur samningurinn þegar úr gildi þann sama dag.

Samningurinn miðaðst við móttöku að hámarki 30 flóttamönnum. Samningurinn verður lagður fyrir bæjarráð til samþykktar áður en hann fer í undirritun.

Fram kemur í afgreiðslu ráðsins að það samþykki fyrir sitt leyti samninginn en leggur áherslu á mikilvægi þess að ríkið uppfylli ákvæði um að koma á fót starfshópi með það að markmiði að endurskoða samninginn til framtíðar.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.