Mun auðveldara í dag en í gær
ÍBV lagði KA/�?ór í annað sinn á jafn mörgum dögum í kvennahandboltanum. Í gær áttust liðin við í miklum baráttuleik í bikarkeppninni þar sem ÍBV tryggði sér sigur á lokamínútunum. En það var öllu minni spenna í leiknum í dag enda hafði ÍBV talsverða yfirburði í leiknum. Eyjakonur náðu strax undirtökunum, KA/�?ór var aðeins einu sinni yfir í leiknum en það var í stöðunni 1:2. ÍBV jók muninn hægt og bítandi í fyrri hálfleik og náði mest sex marka forystu, 17:11 en staðan í hálfleik var 17:12. Eyjakonur héldu norðankonum svo vel frá sér í síðari hálfleik, juku muninn mest í tíu mörk en undir varamenn ÍBV sáu svo um það í lokin að sigla stigunum tveimur í heimahöfn og lokatölur urðu 30:23.
Með sigrinum komst ÍBV aftur upp í fjórða sætið, upp fyrir Fram sem er í fimmta sæti með jafn mörg stig en lakari niðurstöðu úr innbyrðis viðureign liðanna. �?etta þýðir að ÍBV tekur þátt í Deildarbikarnum sem fer fram 13. og 14. desember. �?ar mætast fjögur efstu liðin í deildinni í undanúrslitum, ÍBV mætir Stjörnunni og Grótta og Valur mætast. Sigurvegari leikjanna spilar svo til úrslita en allir leikirnir fara fram í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.
�?etta var síðasta umferð Íslandsmótsins þar til á nýju ári en hlé verður gert á mótinu fram í janúar vegna Heimsmeistaramóts landsliðs í desember, þrátt fyrir að Ísland hafi mistekist að komast á mótið.
Mörk ÍBV: Vera Lopes 8, Ester �?skarsdóttir 7, Guðbjörg Guðmannsdóttir 5, Drífa �?orvaldsdóttir 4, �?órsteina Sigurbjörnsdóttir 2, Telma Amado 1, Arna �?yrí �?lafsdóttir 1, Kristrún Hlynsdóttir 1, Selma Sigurbjörnsdóttir 1.
Varin skot: Erla Rós Sigmarsdóttir 5, Dröfn Haraldsdóttir 11, Sara Dís Davíðsdóttir 1.

Nýjustu fréttir

Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.