Nemendasýning í Einarsstofu á morgun
Á morgun, föstudaginn 22. nóvember klukkan 17:00 opnar myndlistasýning á vegum Listvina Safnahúss. Um er að ræða sýningu tæplega 30 nemenda úr Myndlistaskóla Steinunnar, sem er afrakstur síðustu námskeiða skólans. Verkin sem sýnd verða, eru teikningar, vatnslitir og olía en listamennirnir eru á aldrinum 10 ára til fullþroska.
Sýningin stendur í rétta viku, til fimmtudagsins 28. nóvember en þá sýnir Steinunn eigin listaverk. Sýning hennar verður auglýst nánar síðar.
�??Allir hjartanlega velkomnir til að fagna ungum og ungum í anda sem margir hverjir eru að stíga sín fyrstu skref á listabrautinni,�?? segir í tilkynningu frá Listvinum Safnahúss.

Nýjustu fréttir

Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.