Ný stjórn kjörin hjá kjördæmafélagi Miðflokksins í Suðurkjördæmi
Stjórn MFS 2024. Frá vinstri: Guðrún, Tómas Ellert, Sigmundur Davíð, Patience, Friðrik og Guðni. Ljósmynd/aðsend

Ný stjórn var kjörin á aðalfundi kjördæmafélags Miðflokksins í Suðurkjördæmi laugardaginn 23. mars sl.. Formaður var kjörin Patience A. Karlsson, varaformaður Tómas Ellert Tómasson, gjaldkeri Guðrún Kr. Jóhannsdóttir. Aðrir stjórnarmenn Guðni Hjörleifsson og Friðrik Ólafsson. Varamenn Elís Anton Sigurðsson og Eggert Sigurbergsson.

Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa óskaði Sigmundur Davíð formaður flokksins nýjum formanni og nýrri stjórn til hamingju með kjörið. Jafnframt þakkaði hann fráfarandi formanni Bjarna Gunnólfssyni og fráfarandi stjórn fyrir vel unnin störf. Fór Sigmundur Davíð yfir helstu málin sem í gangi eru í dag í íslenskum stjórnmálum þar sem er af nógu að taka. Mikil og góð umræða var á fundinum, segir í tilkyninngu frá Miðflokknum í Suðurkjördæmi.

Nýjustu fréttir

Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Bæjarráð samþykkir að selja hlut í Landsbankanum
Lokaumferðin: ÍBV fær topplið Vals í heimsókn
„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“
Eyjalistinn boðar til félagsfundar
Góð aðsókn á fundi Eyþórs
Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum
Heimaey í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.