Nýárs atskákmót TV

Taflfélag Vestmannaeyja byrjar starfsárið með Nýars-atskákmóti kl. 13.00 sunnudaginn 4. janúar 2026 í skákheimilinu að Heiðarvegi 9.

Tími á hvorn keppenda á skák verður 10 mín. + 5 sek. á leik. Reikna má með að hver umferð taki 20-25 mínútur. Þessi tímamörk eru heppileg ekki síst fyrir þá sem hafa lítið  hafa teflt atskákir eða hraðskákir. Eru þetta  stystu tímamörk fyrir atskák , en   helmingi lengri en í hraðskákum.   Reikna má með að mótinu ljúki um kl. 15.30 -16.00 á sunnudag.

Tefldar verða sjö umferðir og verður Sæmundur Einarsson skákstjóri. Nýársmótið  er fyrsta verkefni félagsins árinu, en 29. ágúst 2026 verða liðin 100 ár – heil öld- frá stofnun Taflfélags Vestmannaeyja. Þessara merku tímamóta verður minnst með ýmsu móti á afmælisárinu.

Skákþing Vestmannaeyja 2026  hefst seinnihluta janúar mánaðar og verða tefldar tvær umferðir á viku. Umhugsunartími verður 60 mín. á skák + 30 sek. á leik á hvorn keppenda.  Nánar verður greint Skákþingingu og skráningu keppenda í fjölmiðlum þegar nær dregur, segir í tilkynningu frá TV.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.