Eins og fram hefur komið halda Vinir og vandamenn þátttökutónleika í Höllinni þann 4. júlí og þar ætla þeir ekki aðeins að flytja eldri Eyjalög heldur verða einnig frumflutt tvö ný, sem bæði krefjast virkrar þátttöku áhorfenda. Það fyrra heitir, “Kappar þrír’ og er fjögurra erinda hetjukvæði eftir Leif Geir Hafsteinsson um þá Oddgeir Kristjánsson, Árna úr Eyjum og Ása í Bæ.
Eyjafréttir fengu góðfúslegt leyfi til að birta myndskeið af æfingu Vina og vandamanna þar sem þeir syngja fyrsta erindið, til að gefa verðandi tónleikagestum tækifæri til að læra hvenær á að klappa og hvenær á að syngja með.
Lagið er eftir hinn dáða norska þjóðlagatónlistarmann Lillebjörn Nilsen sem lést fyrr á árinu, en textinn er eins og fyrr segir eftir Leif Geir. Texti 1. erindis fylgir hér á eftir – áhorfendur eru beðnir um að klappa þegar við á, og syngja það sem er ritað með hástöfum:
Í Eyjum upp úr nítjánhundruð fæddust kappar þrír (KLAPP)
sem sáu gráan hversdaginn sem litríkt ævintýr. (KLAPP)
Þótt almenningur deildi ekki skilningi á því, (KLAPP)
að tónlist skipti máli þegar væri fiskerí
En kapparnir héldu fast við sitt SJÚDDERÍRA SJÚDDERÍREI (KLAPP)
Féllu’ ekki’ í þann fúla pytt SJÚDDERÍRA SJÚDDERÍREI (KLAPP)
Að bakka um lítið hænufet
þeir gáfu í úrtölurnar fret
í tónlistarsköpun settu met! SJÚDDERÍRA SJÚDDERÍREI (KLAPP)
TRALALALALALA
DREKKKUM ÞEIM OKKAR SKÁL! (KLAPP)
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.