Nýtt fyrirkomulag við greiðslu og losun á úrgangi
sorp_opf_2024_cro
Móttökustöð fyrir sorp. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Frá og með mánudeginum 3. mars gildir ný gjaldskrá Terra, þar sem kostnaður fer eftir magni og flokkun úrgangs. Greiða þarf á staðnum við losun. Þetta segir í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar.

Þar segir jafnframt að í nýjum samningi við Terra um rekstur móttökustöðvarinnar breytist fyrirkomulag losunar úrgangs í samræmi við lög og meginreglur hringrásahagkerfisins. Gjaldskráin er hluti af sorpútboði sem samþykkt var á fundi nr. 309 í framkvæmda- og hafnarráði þann 2. október 2024.

Hingað til hafa fasteignaeigendur í Vestmannaeyjum sameiginlega staðið straum af kostnaði við sorphirðu og meðhöndlun úrgangs frá heimilum í gegnum sorpgjöld sem eru inni í fasteignagjöldum.

Móttaka og förgun úrgangs hefur verið niðurgreitt af sveitarfélaginu með útsvarstekjum og á síðasta ári var kostnaður við það um 90 milljónir króna.

Alltaf hefur þurft að greiða fyrir meðhöndlun þessara úrgangsflokka sem eru í gjaldskrá og hefur sveitarfélagið gert það hingað til og þess vegna ekki rukkað sérstaklega. Sveitarfélagið má ekki niðurgreiða þessa þjónustu lengur og það þarf að breyta þessu fyrirkomulagi vegna lagaskyldu þannig að einungis þeir sem losa úrgang á móttökustöðinni greiði fyrir þjónustuna.

Gjaldskrá Terra er birt hér

Ekki verður byrjað að rukka fyrir textíl fyrr en niðurstöður úr samtali við Samband íslenskra sveitarfélaga liggja fyrir þess efnis að reyna að koma þessum úrgangsstraumi í annan farveg.

Á grenndarstöðvum er söfnun á þremur úrgangsflokkum: málmi, gleri og textíl. Þar er hægt að fara með þá úrgangsflokka gjaldfrjálst.

 

Upplýsingar um kostnað við losun og eyðingu

Afgreiðsluferli er eftirfarandi:

  1. Starfsmaður tekur á móti viðskiptavinum við inngang móttökustöðvar.
  1. Viðskiptavinir skýra frá því hvaða tegund úrgangs þeir eru með meðferðis.
  1. Gjaldskyldur úrgangur er greiddur eftir rúmmáli og flokki.
  1. Greiðsla fer fram áður en úrgangur er losaður.
  1. Úrgangi er komið fyrir í réttum ílátum af viðskiptavini samkvæmt leiðbeiningum starfsmanna.
  1. Útkeyrsla er sömu leið og komið er inn.

Mikilvæg atriði til að auðvelda heimsókn þína:

  • Sýnum tillitssemi, þolinmæði, göngum snyrtilega um og tökum tillit til annarra.
  • Flokkaðu úrgang áður en þú kemur á stöðina til að flýta fyrir afgreiðslu.
  • Fyrirmyndar flokkun skilar úrgangi aftur út í hringrásarhagkerfið. Þar fer úrgangurinn í endurnotkun, endurnýtingu eða endurvinnslu.
  • Notaðu glæra poka til að auðvelda flokkun.
  • Virðum opnunartíma og er með öllu óheimilt að skilja úrgang eftir fyrir utan móttökustöðina.
  • Taktu upp það sem fellur til hliðar við losun og með því höldum við svæðinu snyrtilegu.
  • Til þess að tryggja öryggi biðjum við þig að vera ekki að róta eða fjarlægja hluti úr sorpgámum.
  • Reykingar eru bannaðar á svæðinu.
  • Starfsfólk veitir leiðbeiningar en aðstoðar ekki við losun úrgangs.
  • Börn eru á ábyrgð fullorðinna á svæðinu.

Móttökuskilmálar

  • Úrgangi skal skila flokkuðum á móttökustöðinni.
  • Rúmmálsminnkun úrgangs leiðir til lægri gjalda, betri nýtingar á ílátum, minni aksturs og þarf af leiðandi minni umhverfisáhrifa.
  • Æskilegt er að úrgangur sé í farmi sem ekki er stærri en 2m³ til að tryggja skilvirkt flæði á móttökustöðinni.

 

Úrvinnslusjóður

Vestmannaeyjabær vill benda íbúum á mjög áhugaverða vefsíðu Úrvinnslusjóðs, www.urvinnslusjodur.is, þar sem hægt er að skoða tölfræðina á bak við sorpsöfnun sveitarfélaganna. Farið er í tengilinn “Tölulegar upplýsingar” og þar í “Sérstök söfnun”. Einnig er beinn tengill hér.

Hægt er að skoða upplýsingar um öll sveitarfélög á landinu, og ef Vestmannaeyjabær einn og sér er valinn koma tölur einungis þaðan.

Bæði er hægt að sjá magn sorps og hvernig það er flokkað, en einnig hægt að sjá hversu há fjárhæð flokkað sorp skilar sér til baka til sveitarfélagsins. Ef til að mynda er valinn seinni helmingur ársins 2024 sést að endurgreiðsla til Vestmannaeyjabær var um 6,3 milljónir króna vegna flokkaðs sorps.

Í gjaldskrá Vestmannaeyjabæjar er gert ráð fyrir þessum endurgreiðslum. Taka skal það fram að því meira sem er flokkað, því hærri er endurgreiðslan og þ.a.l. eykst svigrúmið sem Vestmannaeyjabær hefur til að halda gjaldskránni stöðugri eða lækka hana með tíð og tíma.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði á Akureyri
Í dag eru 84 íbúðir í byggingu
ÍBV sækir KA heim í dag
Eyjamenn í eldlínunni
Konudagurinn er í dag
Jafnt hjá ÍBV og Fram í Lengjubikar kvenna
Tómas Bent og félagar í Hearts aftur á sigurbraut
ÍBV vann Suðurlandsslaginn

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.