Nýtt kvótaár fer vel af stað
Vestmannaey VE og Bergur VE við bryggju í Eyjum.

Ísfisktogarinn Bergur VE landaði fullfermi í Neskaupstað sl. sunnudag. Aflinn var þorskur og ýsa. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Ragnar Waage Pálmason skipstjóra og spurði fyrst hvar hefði verið veitt. „Við vorum á Glettinganesflakinu og þar var ágætis kropp. Fiskurinn sem þarna fékkst var líka mjög góður. Í túrnum gerði suðaustanbrælu og þá dró svolítið úr veiðinni. Eftir löndun í Neskaupstað héldum við aftur á svipaðar slóðir, tókum þrjú hol en síðan var haldið suður fyrir land á Ingólfshöfðann. Nú er ekki eitt einasta skip að botnfiskveiðum á austursvæðinu enda bæði Ljósafell og Gullver í slipp en þeir eru þarna venjulega. Togararnir eru mikið í ufsaleit fyrir vestan og það hefur verið ágæt veiði á Halanum. Þetta er allt öðruvísi en í fyrra því þá voru um þetta leyti ársins 20 – 30 togarar fyrir austan í þokkalegri veiði en fiskurinn var auðvitað í síldinni,“ segir Ragnar.

Vestmannaey VE kom til löndunar í Vestmannaeyjum í gærmorgun og sló heimasíðan á þráðinn til Egils Guðna Guðnasonar skipstjóra. „Við vorum á Víkinni og á Ingólfshöfðanum og vorum að koma til Eyja með fullfermi. Það var leiðinlegt veður í túrnum, einkum til að byrja með. Þarna voru 7 – 8 metrar en alltaf fiskur. Aflinn er langmest þorskur. Þetta er fyrsti túrinn á nýju kvótaári og það verður ekki annað sagt en að þetta nýja ár fari bara vel af stað. Við reiknum með að halda til veiða á ný strax að löndun lokinni,“ segir Egill Guðni.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.