Nýtt og glæsilegt fjölbýlishús fyrirhugað á Tölvunarreitnum

Þann 28. mars samþykkti Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja að auglýsa breytingu á deiliskipulagi miðbæjar M-1. Gert er ráð fyrir 8 íbúðum (3-3-2) á 3 hæðum sem byggðar verða ofan á húsnæði Tölvunar að Strandvegi 51.

Í umsókninni kemur m.a. fram:

Húsið verði 4 hæðir með inndregnum hæðum eftir því sem ofar dregur og svalir á suður-, austur- og vesturhliðum. Húsið verði með einhalla þaki til suðurs og hámarkshæð verði undir 15 metrum. Við byggingu hússins verði tekið mið af BREEAM vottunarkerfinu sem tekur mið af vistvænum byggingarefnum.

Stefnt er að góðri innivist með góðri orkunýtingu með endurnýjanlegum orkugjöfum og sjálfbærni með sólarsellum á þaki og varmadælulausnum. Eins og sést á meðfylgjandi myndum og myndbandi er hér um framsýnt verkefni að ræða með góða tengingu við náttúru Eyjanna, enda munu glöggir áhorfendur sjá samlíkingu byggingarinnar við útlínur Suðureyjar.

Hönnun/teiknivinna: Ríkarður T. Stefánsson / TPZ ehf

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.