Öflug íslenskukennsla í febrúar
Merkum áfanga fagnað en hópurinn var einstaklega skemmtilegur og áhugasamur.

Íslenskukennsla á dagtíma sem haldin var frá 2. til 24. febrúar tókst einstaklega vel. Kennt var fjórum sinnum í viku, frá mánudegi til fimmtudags, og var mæting og þátttaka til fyrirmyndar allan tímann. Hópurinn var einstaklega skemmtilegur og áhugasamur,“ segir Jóhanna Lilja Eiríksdóttir sem stýrir íslenskunámi hjá Visku.

„Nemendur sýndu mikinn metnað í námi sínu, studdu hvert annað og tóku virkan þátt í umræðum og verkefnum. Það er alltaf jafn gefandi að sjá sjálfstraustið aukast og íslenskuna eflast með hverri vikunni sem líður. Í kennslunni var lögð áhersla á að byggja upp grunnfærni þar sem þetta er íslenska númer 1, í íslensku 2 er síðan hægt að leika sér meira, þar sem grunnhæfni er nógu mikil.

Í mars hefst nýr hópur í Íslensku 2 og hlökkum við mikið til að taka á móti nýjum og gömlum nemendum. Við í Visku hlökkum til áframhaldandi samstarfs og spennandi vetrar með metnaðarfullum nemendum. Nú erum við með kvöldhópa í íslensku númer 1,2,3 og 4,“ segir Jóhanna Lilja að endingu.

Jóhanna Lilja með sínu fólki í smá veislu á Vigtinni.

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða fótboltamaður
Björt hlakkar til að læra að lesa
COWI annast umhverfismat vegna stórskipakants
Tvöföld ÍBV-veisla í dag
Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.