�?flugt fylgi Sjálfstæðisflokksins lykillinn að árangri á næstu árum

Góð samvinna bæjarstjórnar, alþingismanna og ríkisstjórnar er lykillinn að því að vinna góðum málum brautargengi. Ýmislegt hefur þróast í rétta átt á undnaförnum árum þó svo að auðvitað hefðu sumir hlutir mátt gerast hraðar en mikilvægast er að vandað sé til verka og árangur náist til langrar framtíðar.

�?að mun skipta Vestmannaeyinga miklu máli að Sjálfstæðisflokkurinn verði áfram forystuafl í ríkisstjórn Íslands og það mun skipta miklu máli að Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurkjördæmi fái öfluga kosningu 12. maí nk. Með öflugri kosningu Sjálfstæðisflokksins verða lögð þung lóð á vogarskálar þess að árangur muni nást í þeim baráttumálum sem framundan eru. Með öflugum Sjálfstæðisflokki á Alþingi og öflugum meirihluta bæjarstjórnar í Eyjum mun nást árangur á mörgum sviðum fyrir Vestmannaeyjar.

Tryggja þarf áframhaldandi stöðugleika í sjávarútvegi og afnema á auðlindagjaldið

�?ó að deilt hafi verið um fiskveiðistjórnarkerfið held ég að varla velkist nokkur í vafa um það í Eyjum nú að staða Eyjamanna á sviði sjávarútvegs er afar sterk í dag. Atvinnugreinin þarf að búa við stöðugleika og þann stöðugleika þarf að tryggja. �?að væri alvarlegt fyrir útgerð í Vestmannaeyjum ef færi yrði gefið á því að rugga bátnum í þeim efnum. Til eru þeir sem vilja kollvarpa þeim stöðugleika sem náðst hefur í útgerð og setja greinina í óvissu. Slíkt gæti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir útgerð og fiskvinnslu í Eyjum.

Vestmannaeyjar hafa alla burði til að styrkjast enn frekar sem verstöð. Sóknarfæri eru mörg og stórhugur útgerðarmanna í Eyjum í endurnýjun flotans sýnir að útgerðarmenn í Eyjum eru á tánum og ætla að sækja fram á veg.

Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins var samþykkt ályktun þess efnis að fundurinn væri andvígur því að skattleggja eina atvinnugrein umfram aðrar með innheimtu svokallaðs auðlindagjalds. �?að er réttlætismál að berjast gegn auðlindagjaldinu sem er fyrst og fremst landsbyggðarskattur og Landsfundur Sjálfstæðisflokksins tók ótvírætt af skarið í þeim efnum með ályktun sinni.

Ákvörðun um framtíðarsamgöngur verður tekin fljótlega

Samgöngur eru mál málanna í Vestmannaeyjum nú eins og undanfarin ár. �?ó góðir áfangar hafi náðst í samgöngubótum á liðnum árum með fjölgun ferða er mörgu enn ólokið. Framtíðarlausn í samgöngum er handan við hornið. Fyrir liggja niðurstöður sérfræðinganefndar um möguleika á hafnargerð í Bakkafjöru en nauðsynlegt er að yfirfara þær niðurstöður gaumgæfilega og taka hliðsjón af og mark á ábendingum sem settar hafa verið fram af sjómönnum um hafnargerð í Bakkafjöru. �?að er mitt mat að ekki sé nóg að gera fræðilegar rannsóknir á þessu svæði, það eigi að skoða aðstæður betur á vetvangi og til að meta fræðilegar niðurstöður áður en endanleg ákvörðun verður tekin.

Samgönguráðherra hefur, að tillögu bæjarstjórnar Vestmannaeyja, hafið úttekt óháðs aðila á þeim gögnum sem liggja fyrir um gerð jarðganga milli lands og Eyja. Sú vinna stendur nú yfir og þegar niðurstöður hennar liggja fyrir verða taknar ákvarðanir um framhald í þeim efnum.

�?að er mitt mat að skynsamlegra sé að fá þessar niðurstöður á hreint áður en lengra verður haldið og endanleg ákvörðun tekin.

Endanleg ákvörðun um framtíðarsamgöngur milli lands og Eyja verður tekin á næstu misserum. �?að mun skipta Eyjamenn miklu að Sjálfstæðisflokkurinn fái gott fylgi Eyjamanna til þess að verða ráðandi afl í þeirri ákvarðanatöku í góðu samstarfi við bæjarstjórn Vestmannaeyja.

Niðurstaða kosninganna skiptir miklu máli fyrir Vestmannaeyjar

Eyjamenn eiga öfluga málsvara í þeim hópi sem skipar framvarðasveit framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. �?g hef tekið virkan þátt í kosningabaráttu flokksins nú fyrir kosninganar með það að markmiði að tryggja það að Sjálfstæðisflokkurinn nái a.m.k. 4 kjördæmakjörnum fulltrúum á þing í kjördæminu.

Takist það mun staða Eyjamanna verða afar sterk í framvarðasveit sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi.

�?g skora á Eyjamenn að leggja okkur lið í þeirri baráttu sem framundan er því það mun skipta miklu máli fyrir Vestmannaeyjar að Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurkjördæmi fái öfluga kosningu 12. maí nk.

Grímur Gíslason, höfundur er í 8. sæti á lista Sjálfstæðisflokks

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Dýpkun gekk illa í morgun
Kjarnaborun hafin í Eyjum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.