Ölfus - Áform um græna atvinnuuppbyggingu

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Þekkingarsetrið Ölfus Cluster hafa nú skrifað undir samning um þróun grænnar atvinnuuppbyggingar í sveitarfélaginu Ölfusi.

Markmið samningsins er er að undirbúa græna atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu Ölfusi í anda nýsköpunar, loftslagsmála og orkuskipta. M.a. verður unnið að því að koma á fót Grænum iðngarði í Ölfusi á um 250 hektara athafna- og iðnaðarsvæði fyrir utan Þorlákshöfn.

Fyrir liggur að Sveitarfélagið Ölfus og Ölfus Cluster hafa unnið einbeitt að styrkingu atvinnulífsins á svæðinu með áherslu á framleiðslu á umhverfisvænum matvælum svo sem landeldi á laxi. Samhliða hefur verið horft til uppbyggingar á annarri umhverfisvænni starfsemi svo sem grænum gagnaverum, framleiðslu á umhverfisvænum íblöndunarefnum til notkunar í byggingariðnaði, áburðarframleiðslu og margt fl. Lætur nærri að fyrirhugað sé atvinnuuppbygging fyrir tvö til þrjúhundruð milljarða á næstu 5 til 7 árum. Vilji er til þess að uppbygging falli sem best að

 

Elliði Vignisson, bæjarstjóri:

„Aðkoma umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins að þessu verkefni er ómetanleg og varður vart metið til fjár. Með þessu tryggjum við ákveðna samfellu á milli þeirra áherslna sem við hér heima í héraði höfum á umhverfis- og loftslagsmál í uppbyggingu verðmætasóknar og áherslna ríkisstjórnar. Þekkt er að sókn á forsendum loftslagsmála gerist ekki án aukinnar sóknar í græna orku og þar ætlum við okkur stóra hluti.  Við ætlum okkur að gera Ölfusið að Kísildal frameiðslu á umhverfisvænum matvælum og tengdrar starfsemi. Frá því markmiði verður ekki hvikað og þessi aðkoma ráðuneytisins er ein af vörðunum á þeirri leið.“

Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra:

„Umhverfis- og loftslagsmál eru ekki einangrað verkefni ráðuneytisins. Til að ná þeim metnaðarfullu markmiðum sem við sem þjóð höfum sett okkur þarf víðtækt samstarf þar sem allir róa í sömu átt. Við viljum greiða fyrir grænni atvinnuuppbyggingu, fjárfestingum og verkefnum sem stuðla að því að yfirlýstum markmiðum stjórnvalda verði náð. Sveitarfélagið Ölfus og Ölfus Cluster hafa á seinustu árum sýnt ríkt frumkvæði í því sem snýr að framleiðslu á umhverfisvænum matvælum sem og annarar og sóknar á forsendum ábyrgrar auðlindanýtingar. Þessum samningi sem við höfum nú undirritað er ætlað að styðja við áframhaldandi verðmætasköpun á forsendum umhverfis- og loftslagsmála.  Þannig verður velferð best varin til lengri og skemmri tíma.“

Fréttatilkynning.

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.