Omar Sowe fær tveggja leikja bann
Omar Sowe í leik með ÍBV í sumar. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Omar Sowe, leikmaður karlaliðs ÍBV í fótbolta, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann eftir að hafa fengið að líta rauða spjaldið í leik ÍBV og KA í 15. umferð Bestu deildar karla.

Omar var rekinn af velli á 77. mínútu leiksins fyrir að reka höfuðið í Birgi Baldvinsson, leikmanns KA, þegar Eyjamenn voru við að taka hornspyrnu. Þetta er fyrsta rauða spjald Omars í sumar en hann fær auka leik í bann fyrir ofsafengna framkomu. 

Hann mun því að öllum líkindum missa af leik ÍBV gegn Breiðablik á útivelli mánudaginn 27. júlí og Þjóðhátíðarleiknum gegn Fram sem fer fram laugardaginn 1. ágúst. 

Samkvæmt heimildum Fotbolta.net ætlar ÍBV að áfrýja niðurstöðunni.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.