Opið fræðsluerindi um heilabilun og samskipti
Erindið verður haldið í Akóges salnum.

Opið fræðsluerindi um heilabilun og samskipti verður haldið í Akóges á morgun, þriðjudaginn 1. september klukkan 18:00.

Á erindinu verður fjallað um þær breyttu aðstæður og áskoranir sem geta fylgt heilabilun. Markmiðið er að auka þekkingu og skilning á málefninu auk þess að veita hagnýtar hugmyndir sem geta stuðlað að bættum samskiptum og samveru einstaklinga með heilabilun og aðstandenda þeirra. Þá verður einnig komið inn á mikilvægi opinnar umræðu til að draga úr fordómum í samfélaginu.

Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri samtakanna, og Ásta Kristín Guðmundsdóttir ráðgjafi sjá um fræðsluna.

Erindið er öllum opið, jafnt einstaklingum með heilabilun, aðstandendum þeirra, fagfólki og öðrum áhugasömum.

Nýjustu fréttir

Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.