Opið fyrir tilnefningar til Menntaverðlauna Suðurlands
Óskað er eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands. Mynd/úr safni

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) óska eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2025.

Í tilkynningu á vef samtakanna segir að allir þeir sem tengjast skóla- og/eða menntunarstarfi með einhverjum hætti, svo sem sveitarfélög, skólanefndir, kennarar, starfsfólk skóla og annað áhugafólk um menntun og skólastarf, hafi rétt til að tilnefna til verðlaunanna. Tilnefningu þarf að fylgja ítarlegur rökstuðningur.

Allir sem koma að skóla- eða menntunarstarfi geta hlotið verðlaunin, meðal annars leikskólar, grunnskólar, framhaldsskólar, símenntunarstöðvar, háskólastofnanir, kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélög/skólanefndir og foreldrafélög.

Frestur til að skila tilnefningum er til og með föstudeginum 31. janúar

Tilnefningar skulu berast til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56, 800 Selfossi, eða með tölvupósti á netfangið menntaverdlaun@sudurland.is, fyrir miðnætti föstudaginn 31. janúar nk.

Menntaverðlaun Suðurlands verða nú veitt í 18. sinn. Í verðlaununum felast peningaverðlaun sem nýtast til áframhaldandi menntunarstarfs ásamt formlegri viðurkenningu. Verðlaunin verða afhent við formlega athöfn í tengslum við hátíðarfund Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands þann 10. febrúar næstkomandi á Hótel Selfoss.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.