�?lafur Gränz, jafnan kallaður �?li, er stór og fyrirferðarmikill maður, enda Vestmannaeyingur og það væri líklega fljótlegra að telja það upp það sem hann hefur ekki lagt stund á, en hitt sem hann hefur gert. Hann er lærður smiður, á sjö börn, hefur rekið trésmíðaverkstæði, byggingavöruverslun, bílaleigu, bátaferðafyrirtæki, bókaútgáfu og gegnt formennsku í óteljandi félögum. Auk þess hefur hann ferðast víða um heim og dansað rokk og ról fram á morgun, ýmist hér heima eða í útlöndum, án þess að drekka dropa af áfengi. Núna er hann formaður Hollvinafélags heilsustofnunar NLFÍ en þar stendur fyrir dyrum sextugsafmæli í sumar.
Allt orðið yfirfullt af bílum
�?li býr ásamt konunni sinni Iðunni Guðmundsdóttur á áttundu og níundu hæð í stórri blokk í Breiðholti. �?angað ætlaði hann aldrei að flytja, en þeim líkar vel að búa í Breiðholtinu þar sem blokkirnar standa í kringum stórt opið svæði. �?ar eru aðalinngangar í húsin, því þegar húsin voru byggð tíðkaðist að íbúarnir tækju strætó, þar sem fáir áttu bíla. �?að var ekki reiknað með að þeir ækju upp að dyrum. �??�?að er tímanna tákn, að enginn gengur nú um aðalinngangana hér, heldur koma menn að bakinngöngunum þar sem hægt er að aka að og leggja, og allt er yfirfullt af bílum�??, segir �?li.
Á inniskónum í fiskbúðina
Áður en þau Iðunn fluttu í Breiðholtið, bjuggu þau í Ásholti í nýju húsi ofarlega á Laugavegi. �??�?að var svo mikil mengun þar og traffík allan sólarhringinn�??, segir �?li. �??�?ar var líka langt í alla þjónustu miðað við það sem er hér. �??Hérna fer maður á inniskónum út í bakarí og í fiskbúðina�??, segir hann �?au hafa búið á sama stað í Breiðholtinu í 16 ár og hafa ekki setið auðum höndum. �?li vann við bókaútgáfu, en Iðunn sem er kennari, hætti að vinna fyrir nokkrum árum. �?au hafa ferðast mikið og stundað leikfimi og dans um árabil. En aðstæðurnar breyttust þegar Iðunn veiktist fyrir þremur árum. Hún fékk tvo blóðtappa í heila og síðan heilablóðfall.
Missti málið
�?au voru á ferðalagi á Tenerife þegar Iðunn veiktist og var flutt á sjúkrahús, þar sem læknir frá Kúbu gerði á henni aðgerð. Hún missti máttinn, en náði stórkostlegum bata og þurfti að vera í 3 mánuði á Grensási. �?li hætti bókaútgáfunni og var með henni á hverjum degi í heilt ár og æ síðan. Hann pakkaði hreinlega saman, eins og hann orðar það. Síðustu árin áður en hann �??pakkaði saman�?? var hann í bókaútgáfu. Hann gaf út bækur um nokkur lönd. �??�?g fór til Kína og gaf út bók um Kína. �?g fór líka til Færeyja og gaf út bók um Færeyjar. Sú bók seldist upp á nokkrum vikum og er mest selda bókin í Færeyjum, fyrir utan Biblíuna náttúrulega�?? segir �?li, sem einnig gaf út bækur til dæmis um Norðurlöndin, �?ýskaland, Kanada og Íran.
Afdrifaríkt dansnámskeið
Iðunn og �?li hittust á dansnámskeiði hjá félagsskapnum Komið og dansið í Templarahöllinni fyrir 24 árum. �?á voru þau um fimmtugt og bæði gift. �??�?g var búinn að vera giftur í Vestmannaeyjum og átti 7 börn og Iðunn var gift og átti 3 börn�??. �?að var alger tilviljum að þau fóru á þetta námskeið. Félagi �?la ætlaði að gera honum grikk og skráði hann á námskeiðið. Hann ætlaði að þverskallast við að fara, en lét sig hafa það. Iðunn hafði bara ætlað að kíkja á þetta. En ástin lætur ekki að sér hæða. �?au skildu bæði og giftust.
Fékk nóg af barnastússi
�?li fæddist og ólst upp í Vestmannaeyjum í sex systkinahópi. Iðunn sem fæddist vestur á fjörðum, ólst upp á Eyrarbakka frá fjögurra ára aldri, en hún er dóttir
�?li Gräns lengst til vinstri í efri röð. Við hið hans er �?lafur Gränz faðir hans og síðan móðir hans Ásta Gränz og Sonja systir hans. Í neðri röð frá vinstri eru systkinin, Henry Gränz, Violetta Gränz, Hulda Gränz og Róbert Gränz
�?li Gräns lengst til vinstri í efri röð. Við hið hans er �?lafur Gränz faðir hans og síðan móðir hans Ásta Gränz og Sonja systir hans. Í neðri röð frá vinstri eru systkinin, Henry Gränz, Violetta Gränz, Hulda Gränz og Róbert Gränz
Guðmundar Daníelssonar rithöfundar. Faðir �?la lést aðeins 48 ára og þá var �?li 19 ára. Fjögur yngri systkini voru þá á heimilinu, það yngsta 6 ára. Hann eignaðist síðan sjálfur 7 börn með fjórum konum. Börnin mín eru öll afar sjálfstæð og duglegt fólk, �??þau hafa aldrei beðið mig um að lána sér peninga og þau hafa heldur aldrei beðið mig um að gæta barnanna sinna, eða �??passa�?? segir �?li sem hefur fengið nóg af barnastússi um dagana. En hann segir börnin sín, tengdabörnin og barnabörnin dásamleg og það sé frábært að eyða tíma með þeim. �?etta er enginn smáhópur, því �?li og Iðunn eiga samtals 46 börn og barnabörn. �?að er því fjölmennt í fjölskylduboðum og �?li og systkini hans halda þar að auki jólaboð fyrir stórfjölskylduna á hverju ári. �??�?að eru yfir 100 manns þannig að við tökum alltaf félagsheimili á leigu�??, segir hann.
Stóð uppi allslaus eftir gos
�?li var fyrstur manna til að sjá eldgosið í Vestmannaeyjum 23. janúar 1973. �??Við vorum að ganga þarna tveir félagar um klukkan eitt um nótt og sáum jörðina rifna fyrir framan okkur. �?g tapaði öllu í gosinu. Bílnum var stolið á hafnarbakkanum í Reykjavík og ég sá hann aldrei meir. Innbúið týndist og fannst eftir þrjá mánuði. Íbúðarhúsið fór undir hraun og verkstæðið brann upp. �?g stóð uppi í Reykjavík sjö barna faðir, allslaus. Mér fannst leikurinn tapaður og fannst að ég myndi aldrei eignast neitt framar�??,segir �?li. En hann átti eftir að flytja aftur til Eyja og koma undir sig fótunum á ný. Árið 1986 fór hann hins vegar til Reykjavíkur til að innheimta óuppgerða skuld og ílentist þar.
Viðtalið í heild má lesa
hér.