Pablo Punyed nýr leikmaður ÍBV
Pablo Oshan Punyed skrifaði rétt í þessu undir tveggja ára samning við ÍBV. Punyed kemur frá Stjörnunni en hann varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2014. Punyed er miðjumaður og hefur lykilmaður í liði Stjörnunnar síðastliðinn tvö tímabil. Punyed hefur leikið 39 deildarleiki með Stjörnunni og skorað í þeim fjögur mörk. Áður var Punyed á mála hjá Fjölni og Fylki en hann er fæddur árið 1990.
Bjarni Jóhannsson sagði á blaðamannafundinum að aðdragandinn að samningnum hefði verið tiltölulega stuttur og frábært væri að fá hann í raðir ÍBV og vonaðist hann eftir enn einu góðu sumri hjá honum en hann hefur spilað virkilega vel á Íslandi. Bjarni sagði enn fremur að vonandi verða fleiri fréttir að vænta af leikmannamálum á næstu vikum.
Samningur var undirritaður í beinni útsendingu á ÍBVTv í höfuðstöðvum Bónus en Bónus er einn af aðalstyrktaraðlinum knattspyrnudeildar karla.

Nýjustu fréttir

Áfall fyrir ÍBV – Amalia Frøland með slitið krossband
Meiri sandur í höfninni – dýpkun hefst í fyrramálið
Maí sól – Lag til ömmustelpurnar
Styrkir veittir til fjölbreyttra verkefna
Neyðarkall úr Eyjum
Sigmundur Davíð með opinn fund
Hæsti styrkurinn til Eyja
Dýptarmæling í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.