Pepsídeild karla �?? Gulltryggði sæti sitt í deildinni - Fagna í kvöld
Eftir barning alla seinni umferð Pepsídeildar karla í fótbolta náðu Eyjamenn að klára tímabilið með þokkalegri reisn sem dugði til að halda liðinu í efstu deild. Leikurinn gegn Val á heimavelli um síðustu helgi lagði grunninn að því með 4:0 sigri ÍBV. �?ar með var ÍBV komið á nokkuð lygnan sjó með 22 stig og mun hagstæðara markahlutfall en Víkingur �?lafsvík og Fylki sem voru í sætunum fyrir neðan.
�?essu var svo fylgt eftir með 1:1 jafntefli á Íslandsmeisturum FH á útivelli í dag. Á meðan töpuðu Víkingur og Fylkir sínum leikjum og leika Árbæingar í fyrstu deild að ári. �?að var hinn ungi og efnilegi Devon Már Griffin sem hélt uppi heiðri Eyjamanna í Kapplakrika með marki í upphafi seinni hálfleiks. Er það hans fyrsta mark í efstu deild.
�?að þurfti svo víti fyrir Íslandsmeistarana til að jafna og það urðu lokatölurnar. ÍBV endaði með 23 stig í níunda sæti, vann sex leiki, gerði fjögur jafntefli og tapaði 11. Markatalan er athyglisverð, því á meðan ÍBV skoraði 22 mörk fékk liðið á sig 26 sem er með því lægsta í deildinni.
Í kvöld er lokahóf fótboltans í Höllini þar sem því verður fagnað að enn eiga Eyjamenn kvenna- og karlalið í efstu deild í knattspyrnu.
Myndin er úr leik ÍBV og Vals um síðustu helgi.

Nýjustu fréttir

Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.