Prófum frestað vegna leiks ÍBV
Eins og gefur að skilja er mikill áhugi fyrir handboltaleik ÍBV og Hauka í Hafnarfirði á morgun, fimmtudag enda er um að ræða hreinan úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Fjölmargir mun leggja land undir fót og fara á leikinn frá Eyjum en Herjólfur býður stuðningsmönnum fría ferð en greiða þarf fyrir bíl. Nú hafa skólayfirvöld í Framhaldsskóla Vestmannaeyja gengið í lið með handboltaunnendum og fært öll próf föstudagsins til klukkan 13 í stað 9.
Fréttamaður R�?V spurði einmitt í beinni útsendingu í gær hvort Elliði Vignisson, bæjarstjóri gæti ekki reddað skólakrökkunum fríi. �??�?g ræddi þetta við skólayfirvöld og er stoltur af því að Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum mun gefa nemendum sem eiga að mæta í próf að morgni föstudags möguleika á því að fara á leikinn og mæta svo í prófið klukkan 13 á föstudeginum,�?? sagði Elliði.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.