Rannsókn á hrottalegri nauðgun lokið
Hrottafengin nauðgun og líkamsárás í Vestmannaeyjum fyrir ári er komin í ákæruferli. �?etta staðfestir Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum. Rannsókn lögreglu hafi lokið nýlega. ruv.is greindi fráþ
Málið varðar hrottalega árás á konu á fimmtugsaldri sem fannst meðvitundarlítil í húsgarði í Vestmannaeyjabæ aðfaranótt 17. september í fyrra. Maður á þrítugsaldri var handtekinn skömmu síðar grunaður um að hafa beitt konuna hrottalegu ofbeldi og nauðgað henni. Hann sat um tíma í gæsluvarðhaldi vegna málsins.
Árásin var mjög alvarleg. Konan var flutt með þyrlu á Landspítalann í Fossvogi. Fram kom í fréttum að hún hefði verið svo bólgin í andliti að hún gat ekki opnað augun og líkamshiti hennar hafi verið 35,5 gráður þegar hún fannst. Lögregla telur að hefði hún ekki fengið aðstoð hefði það getað orðið henni að fjörtjóni.
Konan hefur verið erlendis frá því fljótlega eftir árásina og í sumar tók fulltrúi íslenskra yfirvalda skýrslu af henni þar.

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.