Réðist á tvo menn vopnaður hamri
Karlmaður var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna líkamsárásar og innbrota í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Fjórir menn brutust inn í Íþróttamiðstöðina aðfaranótt miðvikudags í síðustu viku og tveimur nóttum síðar brutust þrír þeirra inn á þremur stöðum, í reykkofa, geymslu og bíl sem stóð við verkstæði í bænum.
Eitthvað virðist þó hafa slest upp á vinskapinn seinni nóttina því einn mannanna réðist á annan félaga sinn og ótengdan mann. Árásarmaðurinn var þá með hamar að vopni. Hann var handtekinn og úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Ruv.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.