Rekstarafkoma Vestmannaeyjabæjar jákvæð árið 2022

Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2022 var tekinn til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í dag. Ársreikningurinn sýnir glögglega sterka stöðu bæjarsjóðs, jákvæða rekstrarafkomu, góða eignastöðu og litlar skuldir. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar.

Heildarrekstrartekjur samstæðu Vestmannaeyjabæjar voru 8.013 m.kr. og rekstrargjöld 7.453 m.kr.

Rekstrarafkoma samstæðunnar (A og B hluta) var jákvæð um rúmar 26 m.kr. Fyrir afskriftir og fjármagnsliði var rekstrarafkoma A-hluta bæjarsjóðs jákvæð um 225 m.kr. Að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða var afkoma A-hluta neikvæð um 128 m.kr. Heildarrekstrartekjur samstæðu Vestmannaeyjabæjar voru 8.013 m.kr. og rekstrargjöld 7.453 m.kr.

Það er einkum tveir þættir sem skýra neikvæða afkomu A-hlutans í heild: Annars vegar gjaldfærslu vegna lífeyrisskuldbindinga en gert var ráð fyrir og neikvæðri gangvirðisbreytingu af verðbréfasafni Vestmannaeyjabæjar.

Heildareignir samstæðu Vestmannaeyjabæjar námu rúmum 16.211 m.kr. í árslok 2022. Þar af stóð handbært fé og skammtímafjárfesting í rúmum 2.458 m.kr. Allar fjárfestingar bæjarins á árinu eru fjármagnaðar með handbæru fé (þ.e. eigið fé, ekki lántaka) og námu fjárfestingar samstæðu Vestmannaeyjabæjar um 1.280 m.kr. á árinu.

Markvisst hefur verið unnið að því síðustu ár að greiða niður skuldir bæjarsjóðs og er skuldastaða Vestmannaeyjabæjar við lánastofnanir mjög góð. Jafnframt eru skuldaviðmið, sem oft er vísað til í umræðu um fjármál sveitarfélaga, lágt og töluvert lægra en flestra annarra sveitarfélaga en það nemur 18,8% í árslok 2022.

Það eru einkum óvissuþættir og illviðráðanlegar forsendur sem skýra frávik frá fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar, svo sem breytingar á lífeyrisskuldbindingu, vaxtaumhverfi og kostnaðarsöm slipptaka Herjólfs, sem ekki var hægt að sjá fyrir.

Ársreikningurinn endurspeglar vel fjárhagslegan styrk sveitarfélagsins sem er vel í stakk búið að standa undir framtíðaruppbygginu í sveitarfélaginu. Fjármálastjórnun bæjarins er fagleg, vel ígrunduð og framtíðarhorfur samfélagsins bjartar.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.