Rífandi gangur í saltfiskvinnslu VSV
VSV IMG 7682
Í tilefni af 5000 tonna áfanganum var kaffihlaðborðið í kaffistofu VSV sérstaklega veglegt. Ljósmyndir/vsv.is

„Núna í lok apríl náðum við þeim áfanga í saltfiskvinnslu VSV að hafa unnið úr 5000 tonnum af hráefni á yfirstandandi vetrarvertíð. Það er að langstærstum hluta þorskur sem er saltaður fyrir Portúgalsmarkað en einnig er hluti af þorsknum sem fer til Spánar. Að auki vinnum við ufsa til söltunar en hann endar á mörkuðum í Suður–Ameríku og í Karíbahafi.”  Þetta segir Sverrir Haraldsson, sviðsstjóri botnfiskssviðs Vinnslustöðvarinnar í samtali við Vinnslustöðvar-vefinn.

Starfsfólkið leggur hart að sér

Hann segir jafnframt að vel hafi gengið hjá þeim í vetur, bæði veiðarnar og vinnslan í landi. „Starfsfólk okkar vinnur langa daga á þessum árstíma og leggur hart að sér, það er lykillinn að því að ná þessum árangri og afköstum,” segir hann og bætir við:

„Nú erum við á lokaspetti vertíðarinnar, höldum áfram út maí-mánuð en sumarstopp í saltfiskvinnslunni hefst í byrjun júní. Þá fær fólkið í landvinnslunni frí fram að næstu törn sem verður makrílvinnsla í sumar. Markaðir fyrir saltaðar afurðir hafa verið ágætir og eftirspurn talsverð. Þó eru blikur á lofti og óvissa í efnahagsmálum í S​uður–Evrópu, sem og víða annarsstaðar.”

Í tilefni af 5000 tonna áfanganum var kaffihlaðborðið í kaffistofu VSV sérstaklega veglegt, segir að endingu í fréttinni á Vinnslustöðvarvefnum.

IMG 7680

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.