Í aðdraganda Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka, sem fram fer laugardaginn 22. ágúst, ræða Eyjafréttir við nokkra hlaupara frá Vestmannaeyjum sem taka þátt í ár.
Næst í röðinni er Sandra Dís Pálsdóttir, sem ætlar að hlaupa 21 km. Hún hleypur fyrir Minningarsjóð Gunnars Karls, sem að þessu sinni styrkir Guðbjörgu Sillu Viðarsdóttur.
Aldur? Ég er 33 ára.
Fjölskylda? Gift Garðari, saman eigum við þrjú börn Hrafndísi Júlíu 8 ára, Garðar Þór 5 ára og Hörpu Dís 1 árs.
Hvenær byrjaðir þú að hlaupa? Byrjaði að hlaupa fyrir ca 7 árum með góðum pásum inná milli.
Uppáhalds vegalengd sem þú hleypur? 10 – 12 km.
Hvar er skemmtilegast að hlaupa? Í Vestmannaeyjum! Þrátt fyrir allar brekkurnar..
Hvenær sólahrings er best að hlaupa? Um hádegi.
Besti hlaupafélaginn? Þeir eru margir! Eyjaskokkshópurinn, svo getur verið ágætt að fara út að hlaupa með Garðari þrátt fyrir röflið um brekkurnar allan tímann.
Uppáhalds hlaupaskór og fatnaður? Ég er mikið að vinna með Nike..
Hvað er ómissandi á hlaupaæfingu? Góðir skór og góð tónlist í eyrun á gæðaæfingum!
Hvernig nærir þú þig kvöldinu áður og morguninn fyrir keppnishlaup? Kvöldið áður borða ég alltaf pizzu, pasta eða hamborgara. Hafragrautur í morgunmat með allskonar og cappuccino er ómissandi!
Bestu tímar í 5 km, 10 km og hálfmaraþoni? 5 km – 20:43, 10 km – 42:09, 21,1 km – 1:40:02
Hvað hleypur þú mikið í hverri viku? Ca. 40 – 50 km á viku.
Hleypur þú eftir æfingaáætlun? Já.
Hvaða vegalengd tekur þú í Reykjavíkurmaraþoninu? Ég er skráð í hálfmaraþon.
Ertu með markmið fyrir hlaupið? Ég var með markmið að vera um 1:40, ég snéri á mér ökklann svolítið illa um daginn er enn þá að reyna jafna mig en verð vonandi orðin góð og þá bara reyna að gera mitt besta.
Hvernig hefur undirbúningurinn gengið? Hann hefur gengið mjög vel þangað til ég snéri mig..
Ætlar þú að hlaupa fyrir eitthvað góðgerðarfélag? Hvernig hefur það gengið? Já, ætla að hlaupa fyrir Minningarsjóð Gunnars Karls en hann er tileinkaður henni Guðbjörgu Sillu í ár. Hver alla til að fara á Facebook síðuna mína og heita á mig. Ég er líka í keppni við Garðar um hvort okkar safnar meira þannig að nú reynir á mátt þeirra sem lesa Eyjafréttir!
Lýstu þér sem hlauparar í einni setningu? Stemningshlaupari en hef gaman að því að bæta mig og ná árangri!
Eitthvað að lokum? Allir út að hlaupa það er svo gaman! 🤩
Hægt er að heita á Söndru Dís með því að smella hér.