Sandra valin handknattleikskona ársins

Stjórn Handknattleikssambands Íslands hefur valið handknattleiksfólk ársins 2022, þau eru:

Handknattleikskona ársins
Handknattleikskona ársins 2022 er Sandra Erlingsdóttir, 24 ára leikstjórnandi TuS Metzingen í Þýskalandi og íslenska landsliðsins.

Sandra lék með EH Aalborg í Danmörku í vor þar sem hún var valin besti leikmaður liðsins annað árið í röð en liðið var í harðri baráttu um að komast í dönsku úrvalsdeildina. Á vormánuðum samdi Sandra við þýska liðið TuS Metzingen og hefur leikið stór hlutverk með liðinu í þýsku úrvalsdeildinni. Auk þess hefur Sandra verið í lykilhlutverki með A landsliði kvenna á árinu.

Sandra er frá Vestmannaeyjum en lék bæði með ÍBV og HK í yngri flokkum auk þess sem að vera um tíma með Fucshe Berlin í Þýskalandi þegar fjölskylda hennar bjó ytra. Þegar hún flutti aftur heim hóf hún 18 ára að leika með meistaraflokki ÍBV og lék þar í 2 ár þar til hún skipti til Vals sumarið 2018. Hún varð Íslandsmeistari með Val vorið 2020 og fór í framhaldi í atvinnumennsku.

Sandra hefur leikið 16 leiki með kvennalandsliðinu og skorað í þeim 65 mörk.

Handknattleiksmaður ársins
Handknattleiksmaður ársins er Ómar Ingi Magnússon, 25 ára hægri skytta Madgeburg í Þýskalandi og A landsliðs karla.

Ómar Ingi var Þýskalandsmeistari í handknattleik í vor auk þess sem lið hans vann IHF Super Globe annað árið í röð og lenti í 2. sæti í Evrópudeildinni í handknattleik. Ómar Ingi var næst markahæstur allra leikmanna í deildinni en í lok tímabilsins var hann valinn besti leikmaður þýsku deildarinnar. Með landsliðinu náði Ómar 6. sæti á EM í Ungverjalandi og Slóvakíu þar sem hann var valinn í lið ársins.

Ómar lék með yngri flokkum Selfoss og spilaði með meistaraflokki bæði á Selfossi og með Val áður hann hélt í atvinnumennsku til Danmerkur. Þar lék hann með bæði Århus håndbold og Ålborg håndbold áður en hann flutti sig um set og hóf að leika með Magdeburg sumarið 2020.

Ómar hefur leikið 66 landsleiki og skorað í þeim 216 mörk.

Undanfarin ár hefur Ómar stimplað sig inn sem leikmaður á heimsmælikvarða, bæði með sínu félagsliði og landsliði.

Nýjustu fréttir

Innviðaráðherra og forstjóri Vegagerðarinnar heimsóttu borstæði Eyjaganga
Tólf ferðir á dag til og frá Eyjum frá 8. júní – uppfært
Högum okkur
Herjólfur frestar 8 ferða áætlun 
Karlakór Vestmannaeyja með vortónleika
Eyjagöng: Borað yfir 120 metra á rúmri viku
Nei, það er ekki glæpur
Nethamar hætt starfsemi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.